Körfubolti

Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu fé­lögunum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð.
Tryggvi Snær í leik með Bilbao á síðustu leiktíð. Vísir/Getty

Tryggvi Hlinason og félagar hans í Bilbao máttu þola ellefu stiga tap er liðið heimsótti hans gömlu félaga í Zaragoza í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld.

Tryggvi og félagar lentu í vandræðum strax í fyrsta leikhluta. Liðið var ellefu stigum undir þegar honum lauk. Gestirnir í Bilbao náðu ekki að rétta skútuna fyrir hálfleikshléið, en staðan var 39-27 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Tryggvi og félagar klóruðu hins vegar vel í bakkann í þriðja leikhluta og minnkuðu muninn niður í tvö stig fyrir lokaleikhlutann, en misstu heimamenn aftur frá sér í lokin og þurftu að lokum að sætta sig við ellefu stiga tap, 82-71.

Tryggvi var frákastahæsti maður vallarins með níu fráköst fyrir Bilbao, en liðið situr í 13. sæti deildarinnar með sex stig eftir níu leiki, fjórum stigum minna en Zaragoza sem situr í 8. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×