Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Yfir 50 lönd komin með fjarvinnudvalarleyfi en kröfurnar ólíkar Í kjölfar Covid fjölgar þeim löndum hratt sem gefa nú út sérstök fjarvinnudvalarleyfi sem gerir fólki kleift að búa í landinu í lengri eða skemmri tíma. Sem þýðir að fyrir þann hóp fólks sem kýs að starfa í fjarvinnu, er heimurinn að verða að valkosti sem aðsetur. Atvinnulíf 5.5.2023 07:00 Húsleit gerð á heimili Bolsonaro vegna falsanamáls Alríkislögreglumenn gerðu húsleit á heimili Jairs Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, og lögðu hald á síma hans í höfuðborginni Brasilíu í morgun. Húsleitin er sögð tengjast rannsókn á meintum fölsunum á bólusetningarskírteinum vegna Covid-19. Erlent 3.5.2023 14:59 Tilgangur kennarans ekki að lesa ritgerðir eftir gervigreind Hlutverk kennara er ekki að lesa ritgerðir sem gervigreind hefur skrifað. Þetta segir formaður Félags framhaldsskólakennara en nokkur slík tilfelli hafa komið upp og þeim fer fjölgandi. Líta verði á gervigreindarbyltinguna sem tækifæri til að færa áherslur í kennslu meira í átt að hinu félagslega og nær kjarnahlutverki framhaldsskólans. Innlent 30.4.2023 07:01 Fimm greinst með „Arktúrus“ hér á landi Fimm einstaklingar hafa nú greinst hér á landi með nýtt undirafbrigði Ómíkrón XBB veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. Afbrigðið, sem ber opinberlega heitið XBB.1.16 hefur verið tengt við fjölgun augnsýkinga í frásögnum á netinu en gögn heilbrigðisyfirvalda styðja þær frásagnir ekki. Innlent 27.4.2023 13:04 Starfsfólk upplifir vinnustaðinn eins og hótel og fær hundapössun og fleira „Fasteignafélögin eru að gera sér grein fyrir því að byggingarnar gætu staðið tómar ef ekki er ráðist í róttækar breytingar. Þannig að verkefnin sem við höfum verið í felast í raun í því að þegar starfsfólk mætir til vinnu, þá upplifir það bygginguna meira eins og flott hótel en ekki vinnustað með móttöku á neðstu hæðinni,“ segir Kristín Aldan Guðmundsdóttir arkitekt sem starfar og býr í Washington DC í Bandaríkjunum. Atvinnulíf 24.4.2023 07:01 Nýtt afbrigði sem valdið hefur augnsýkingum ekki greinst hér á landi Alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld fylgjast náið með nýju undirafbrigði Ómíkrón XBB veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum og heitir latneska heitinu Arcturus. Fjölgun augnsýkinga hefur verið tengd við afbrigðið í frásögnum á netinu. Sóttvarnarlæknir segir ekki að merkja fjölgun slíkra sýkinga í gögnum heilbrigðisyfirvalda. Afbrigðið hefur enn ekki greinst hér á landi en tilfellum fer fjölgandi á alþjóðavísu og því megi búast við því. Innlent 21.4.2023 14:51 „Þetta er afturför um heilan áratug“ Mikið bakslag hefur orðið í bólusetningum barna víða um heim en 67 milljónir barna hafa misst af einni eða fleiri bólusetningum á síðustu þremur árum. Tortryggni í garð bólusetninga eftir heimsfaraldur spilar þar stórt hlutverk. Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta afturför um heilan áratug en sé ekkert gert gæti tíðni barnadauða aukist. Erlent 20.4.2023 15:00 Mikil fækkun umframdauðsfalla Umframdauðsföllum á Íslandi fækkaði mikið í febrúar eftir gríðarlega aukningu í desember og janúar. Um tíma voru umframdauðsföll hvergi meiri í allri Evrópu en á Íslandi, 29 prósent, en í febrúar var hlutfallið komið niður í 10,7 prósent. Innlent 19.4.2023 15:59 Loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar langt frá því að nást Aðeins er útlit fyrir að innan við helmingur þess samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda sem ríkisstjórnin stefnir að fyrir lok áratugsins náist með núverandi aðgerðum. Losun á Íslandi jókst á milli ára árið 2021 en var þó ennþá lægri en fyrir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Innlent 19.4.2023 09:01 Ný rannsókn: Stefnir nú í að jafnrétti náist eftir 300 ár Eflaust telja einhverjir að nú sé verið að reyna að herja á jafnréttisbaráttunni með fyrirsögn sem er svo sjokkerandi að hún getur ekki annað en náð athygli. Atvinnulíf 19.4.2023 07:00 Margir einkennalausir með blóðtappa Á bilinu 300 til 400 manns greinast árlega með blóðtappa hér á landi. Sjúkdómurinn er talsverð byrði á bæði heilbrigðiskerfinu og samfélaginu öllu því margir eru vangreindir og einkennalausir. Íslenskt fyrirtæki kemur að blóðtapparannsóknum á skógarbjörnum. Innlent 18.4.2023 21:01 Ófyrirséð skakkaföll Berjaya og Icelandair Group fara fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Berjaya Hotels og Icelandair Group gegn fasteignafélaginu Suðurhúsum vegna húsaleigu sem fyrirtækin greiddu ekki í kórónuveirufaraldurinn. Málið er sagt hafa fordæmisgildi fyrir áhrif ófyrirséðra og óviðráðanlegra atvika á samninga. Viðskipti innlent 12.4.2023 21:36 Borgarstjóri segir Reykjavík með betri lánakjör en önnur sveitarfélög Borgarstjóri segir Reykjavik nú þegar búna að afla sér um 7 milljarða af þeim 21 milljarði sem áætlað væri að taka að láni í ár. Borgin væri með minni skuldir miðað við tekjur en nágrannasveitarfélögin og önnur stærstu sveitarfélög landsins. Innlent 12.4.2023 20:00 Fær „draumaferð“ sem fór út um þúfur ekki bætta Kona sem missti af því sem hún lýsti sem draumaferð vegna glundroða á alþjóðlegum flugvöllum síðasta sumar fær kostnað sinn ekki endurgreiddan frá ferðaskrifstofunni sem bókaði ferðina. Hún taldi ráðgjöf ferðaskrifstofuna hafa verið óábyrga vegna ástandsins á flugvöllum á þeim tíma. Viðskipti innlent 12.4.2023 19:39 Panikka alltaf á mismunandi tímum en nú í skýjunum yfir viðtökunum Það var heldur betur stemning í síðustu viku hjá þeim stöllunum Sigurlaugu Guðrúnu Jóhannsdóttur og Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur, sem kynntu til leiks fyrstu útgáfuna af HEIMA-appinu svo kallaða: Atvinnulíf 5.4.2023 07:01 Læknir áminntur fyrir að gefa út vottorð fyrir dýralyfi gegn Covid Heilbrigðisráðuneytið staðfesti áminningu sem embætti landlæknis veitti heimilislækni fyrir að gefa út rangt og villandi læknisvottorð fyrir sjúkling sem flutti inn dýralyf sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Læknirinn bar fyrir sig að hann vissi ekki að lyfið væri ætlað dýrum en ekki mönnum. Innlent 30.3.2023 09:58 Nettröll níddust á föður sex ára drengs sem lést Blaðamaður sem missti sex ára son sinn í janúar hefur orðið vinsælt skotmark fólks á netinu sem segist sannfært um að bóluefni gegn Covid hafi dregið barnið til dauða. Þetta fólk hefur níðst á manninum og sakað hann um að bera ábyrgð á dauða barnsins, jafnvel þó það hafi alls ekki dáið vegna bóluefna. Erlent 29.3.2023 11:45 Æ fleiri karlar pissa sitjandi Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið. Erlent 26.3.2023 14:30 Makamissir og veikindi: „Mér fannst aðalatriðið vera að hann kæmi heim“ „Ég var búin lifa það versta því það er ekkert verra en að missa barn. En munurinn var samt sá að þá héldum við Ási utan um hvort annað á næturnar og grétum saman. Núna var ég ein,“ segir Rúna Didriksen um sársaukann og sorgina sem fylgir því að missa maka sinn til áratuga, en Rúna missti einnig son í bílslysi árið 1987. Áskorun 26.3.2023 07:00 Flestar greiningar inflúensu frá áramótum Vikuna 13. til 19. mars greindust fleiri inflúensutilfelli en nokkra aðra viku frá áramótum. Alls greindust 56 með inflúensu, þar af 47 með inflúensustofn B, fimm með inflúensustofn A(H3) og fjórir með stofn A(H1). Innlent 24.3.2023 09:14 Í kjölfar Covid: Miklu fleira en Stóra uppsögnin í gangi Í kjölfar heimsfaraldurs hefur mikið verið fjallað um Stóru uppsögnina, eða The Great Resignation tímabilið. Þar sem sú þróun sýndi sig á vinnumarkaði um allan heim að hlutfallslega hefðu aldrei jafn margir sagt upp störfum sínum og hreinlega tekið ákvörðun um að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi. Atvinnulíf 24.3.2023 07:01 Óvissustigi vegna Covid aflýst Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig. Innlent 23.3.2023 13:23 Boris segir samkomurnar hafa verið nauðsynlegar Boris Johnson svaraði fyrir „Partygate“ málið svokallaða fyrir þingnefnd í dag. Þar sagði hann að allar samkomur sem haldnar voru á Downingstræti 10, á meðan samkomutakmarkanir voru í gildi, hafi verið nauðsynlegar. Erlent 23.3.2023 00:15 Tvö ár að sætta sig við breytta tilveru eftir Covid Í lok febrúar þessa árs voru þrjú ár frá fyrsta Covid-19 smitinu hér á landi. Okkur óraði ekki fyrir því sem kom í kjölfarið en það fennir fljótt yfir þann tíma sem við bjuggum við takmarkanir og sóttvarnaraðgerðir. Lífið 21.3.2023 10:30 Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. Erlent 21.3.2023 08:27 Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:17 Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. Erlent 18.3.2023 07:52 Skilur ekki hvernig Persónuvernd komst að niðurstöðunni Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir úrskurð Persónuverndar sem héraðsdómur felldi úr gildi í dag vera furðulegan. Fyrirtækið hafi einungis verið að sinna því verkefni sem sóttvarnalæknir fól þeim. Innlent 16.3.2023 18:36 Kári lagði Persónuvernd Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19. Innlent 16.3.2023 17:11 Bein útsending: Aðgerðir á vinnumarkaði í heimsfaraldri Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16 og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er að fylgjast með beinu streymi í spilara að neðan. Viðskipti innlent 16.3.2023 08:55 « ‹ 2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 334 ›
Yfir 50 lönd komin með fjarvinnudvalarleyfi en kröfurnar ólíkar Í kjölfar Covid fjölgar þeim löndum hratt sem gefa nú út sérstök fjarvinnudvalarleyfi sem gerir fólki kleift að búa í landinu í lengri eða skemmri tíma. Sem þýðir að fyrir þann hóp fólks sem kýs að starfa í fjarvinnu, er heimurinn að verða að valkosti sem aðsetur. Atvinnulíf 5.5.2023 07:00
Húsleit gerð á heimili Bolsonaro vegna falsanamáls Alríkislögreglumenn gerðu húsleit á heimili Jairs Bolsonaro, fyrrverandi forseta Brasilíu, og lögðu hald á síma hans í höfuðborginni Brasilíu í morgun. Húsleitin er sögð tengjast rannsókn á meintum fölsunum á bólusetningarskírteinum vegna Covid-19. Erlent 3.5.2023 14:59
Tilgangur kennarans ekki að lesa ritgerðir eftir gervigreind Hlutverk kennara er ekki að lesa ritgerðir sem gervigreind hefur skrifað. Þetta segir formaður Félags framhaldsskólakennara en nokkur slík tilfelli hafa komið upp og þeim fer fjölgandi. Líta verði á gervigreindarbyltinguna sem tækifæri til að færa áherslur í kennslu meira í átt að hinu félagslega og nær kjarnahlutverki framhaldsskólans. Innlent 30.4.2023 07:01
Fimm greinst með „Arktúrus“ hér á landi Fimm einstaklingar hafa nú greinst hér á landi með nýtt undirafbrigði Ómíkrón XBB veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. Afbrigðið, sem ber opinberlega heitið XBB.1.16 hefur verið tengt við fjölgun augnsýkinga í frásögnum á netinu en gögn heilbrigðisyfirvalda styðja þær frásagnir ekki. Innlent 27.4.2023 13:04
Starfsfólk upplifir vinnustaðinn eins og hótel og fær hundapössun og fleira „Fasteignafélögin eru að gera sér grein fyrir því að byggingarnar gætu staðið tómar ef ekki er ráðist í róttækar breytingar. Þannig að verkefnin sem við höfum verið í felast í raun í því að þegar starfsfólk mætir til vinnu, þá upplifir það bygginguna meira eins og flott hótel en ekki vinnustað með móttöku á neðstu hæðinni,“ segir Kristín Aldan Guðmundsdóttir arkitekt sem starfar og býr í Washington DC í Bandaríkjunum. Atvinnulíf 24.4.2023 07:01
Nýtt afbrigði sem valdið hefur augnsýkingum ekki greinst hér á landi Alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld fylgjast náið með nýju undirafbrigði Ómíkrón XBB veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum og heitir latneska heitinu Arcturus. Fjölgun augnsýkinga hefur verið tengd við afbrigðið í frásögnum á netinu. Sóttvarnarlæknir segir ekki að merkja fjölgun slíkra sýkinga í gögnum heilbrigðisyfirvalda. Afbrigðið hefur enn ekki greinst hér á landi en tilfellum fer fjölgandi á alþjóðavísu og því megi búast við því. Innlent 21.4.2023 14:51
„Þetta er afturför um heilan áratug“ Mikið bakslag hefur orðið í bólusetningum barna víða um heim en 67 milljónir barna hafa misst af einni eða fleiri bólusetningum á síðustu þremur árum. Tortryggni í garð bólusetninga eftir heimsfaraldur spilar þar stórt hlutverk. Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir þetta afturför um heilan áratug en sé ekkert gert gæti tíðni barnadauða aukist. Erlent 20.4.2023 15:00
Mikil fækkun umframdauðsfalla Umframdauðsföllum á Íslandi fækkaði mikið í febrúar eftir gríðarlega aukningu í desember og janúar. Um tíma voru umframdauðsföll hvergi meiri í allri Evrópu en á Íslandi, 29 prósent, en í febrúar var hlutfallið komið niður í 10,7 prósent. Innlent 19.4.2023 15:59
Loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar langt frá því að nást Aðeins er útlit fyrir að innan við helmingur þess samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda sem ríkisstjórnin stefnir að fyrir lok áratugsins náist með núverandi aðgerðum. Losun á Íslandi jókst á milli ára árið 2021 en var þó ennþá lægri en fyrir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Innlent 19.4.2023 09:01
Ný rannsókn: Stefnir nú í að jafnrétti náist eftir 300 ár Eflaust telja einhverjir að nú sé verið að reyna að herja á jafnréttisbaráttunni með fyrirsögn sem er svo sjokkerandi að hún getur ekki annað en náð athygli. Atvinnulíf 19.4.2023 07:00
Margir einkennalausir með blóðtappa Á bilinu 300 til 400 manns greinast árlega með blóðtappa hér á landi. Sjúkdómurinn er talsverð byrði á bæði heilbrigðiskerfinu og samfélaginu öllu því margir eru vangreindir og einkennalausir. Íslenskt fyrirtæki kemur að blóðtapparannsóknum á skógarbjörnum. Innlent 18.4.2023 21:01
Ófyrirséð skakkaföll Berjaya og Icelandair Group fara fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Berjaya Hotels og Icelandair Group gegn fasteignafélaginu Suðurhúsum vegna húsaleigu sem fyrirtækin greiddu ekki í kórónuveirufaraldurinn. Málið er sagt hafa fordæmisgildi fyrir áhrif ófyrirséðra og óviðráðanlegra atvika á samninga. Viðskipti innlent 12.4.2023 21:36
Borgarstjóri segir Reykjavík með betri lánakjör en önnur sveitarfélög Borgarstjóri segir Reykjavik nú þegar búna að afla sér um 7 milljarða af þeim 21 milljarði sem áætlað væri að taka að láni í ár. Borgin væri með minni skuldir miðað við tekjur en nágrannasveitarfélögin og önnur stærstu sveitarfélög landsins. Innlent 12.4.2023 20:00
Fær „draumaferð“ sem fór út um þúfur ekki bætta Kona sem missti af því sem hún lýsti sem draumaferð vegna glundroða á alþjóðlegum flugvöllum síðasta sumar fær kostnað sinn ekki endurgreiddan frá ferðaskrifstofunni sem bókaði ferðina. Hún taldi ráðgjöf ferðaskrifstofuna hafa verið óábyrga vegna ástandsins á flugvöllum á þeim tíma. Viðskipti innlent 12.4.2023 19:39
Panikka alltaf á mismunandi tímum en nú í skýjunum yfir viðtökunum Það var heldur betur stemning í síðustu viku hjá þeim stöllunum Sigurlaugu Guðrúnu Jóhannsdóttur og Ölmu Dóru Ríkarðsdóttur, sem kynntu til leiks fyrstu útgáfuna af HEIMA-appinu svo kallaða: Atvinnulíf 5.4.2023 07:01
Læknir áminntur fyrir að gefa út vottorð fyrir dýralyfi gegn Covid Heilbrigðisráðuneytið staðfesti áminningu sem embætti landlæknis veitti heimilislækni fyrir að gefa út rangt og villandi læknisvottorð fyrir sjúkling sem flutti inn dýralyf sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Læknirinn bar fyrir sig að hann vissi ekki að lyfið væri ætlað dýrum en ekki mönnum. Innlent 30.3.2023 09:58
Nettröll níddust á föður sex ára drengs sem lést Blaðamaður sem missti sex ára son sinn í janúar hefur orðið vinsælt skotmark fólks á netinu sem segist sannfært um að bóluefni gegn Covid hafi dregið barnið til dauða. Þetta fólk hefur níðst á manninum og sakað hann um að bera ábyrgð á dauða barnsins, jafnvel þó það hafi alls ekki dáið vegna bóluefna. Erlent 29.3.2023 11:45
Æ fleiri karlar pissa sitjandi Æ fleiri karlar hafa þvaglát sitjandi og virðist sem þeim hafi fjölgað sérstaklega í Covid-faraldrinum. Í Þýskalandi geta menn orðið fyrir því á almenningssalernum að Angela Merkel skipi pissandi körlum að setjast á klósettið. Erlent 26.3.2023 14:30
Makamissir og veikindi: „Mér fannst aðalatriðið vera að hann kæmi heim“ „Ég var búin lifa það versta því það er ekkert verra en að missa barn. En munurinn var samt sá að þá héldum við Ási utan um hvort annað á næturnar og grétum saman. Núna var ég ein,“ segir Rúna Didriksen um sársaukann og sorgina sem fylgir því að missa maka sinn til áratuga, en Rúna missti einnig son í bílslysi árið 1987. Áskorun 26.3.2023 07:00
Flestar greiningar inflúensu frá áramótum Vikuna 13. til 19. mars greindust fleiri inflúensutilfelli en nokkra aðra viku frá áramótum. Alls greindust 56 með inflúensu, þar af 47 með inflúensustofn B, fimm með inflúensustofn A(H3) og fjórir með stofn A(H1). Innlent 24.3.2023 09:14
Í kjölfar Covid: Miklu fleira en Stóra uppsögnin í gangi Í kjölfar heimsfaraldurs hefur mikið verið fjallað um Stóru uppsögnina, eða The Great Resignation tímabilið. Þar sem sú þróun sýndi sig á vinnumarkaði um allan heim að hlutfallslega hefðu aldrei jafn margir sagt upp störfum sínum og hreinlega tekið ákvörðun um að gera eitthvað nýtt eða öðruvísi. Atvinnulíf 24.3.2023 07:01
Óvissustigi vegna Covid aflýst Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig. Innlent 23.3.2023 13:23
Boris segir samkomurnar hafa verið nauðsynlegar Boris Johnson svaraði fyrir „Partygate“ málið svokallaða fyrir þingnefnd í dag. Þar sagði hann að allar samkomur sem haldnar voru á Downingstræti 10, á meðan samkomutakmarkanir voru í gildi, hafi verið nauðsynlegar. Erlent 23.3.2023 00:15
Tvö ár að sætta sig við breytta tilveru eftir Covid Í lok febrúar þessa árs voru þrjú ár frá fyrsta Covid-19 smitinu hér á landi. Okkur óraði ekki fyrir því sem kom í kjölfarið en það fennir fljótt yfir þann tíma sem við bjuggum við takmarkanir og sóttvarnaraðgerðir. Lífið 21.3.2023 10:30
Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. Erlent 21.3.2023 08:27
Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:17
Uppruni Covid: Spjótin beinast að marðarhundum en mikilvæg gögn hurfu Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýndi kínverska embættismenn í gær fyrir að hylma yfir rannsóknir sem gætu varpað ljósi á uppruna Covid-19. Forsvarsmenn WHO spurðu af hverju gögn sem birtust á netinu í janúar og hurfu aftur þegar vísindamenn fóru að spyrjast fyrir um þau, voru ekki birt strax fyrir þremur árum og af hverju þau voru fjarlægð aftur. Erlent 18.3.2023 07:52
Skilur ekki hvernig Persónuvernd komst að niðurstöðunni Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir úrskurð Persónuverndar sem héraðsdómur felldi úr gildi í dag vera furðulegan. Fyrirtækið hafi einungis verið að sinna því verkefni sem sóttvarnalæknir fól þeim. Innlent 16.3.2023 18:36
Kári lagði Persónuvernd Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun Persónuverndar um að Íslensk erfðagreining hefði brotið persónuverndarlög í þremur málum sem sneru að notkun blóðsýna sjúklinga með Covid-19. Innlent 16.3.2023 17:11
Bein útsending: Aðgerðir á vinnumarkaði í heimsfaraldri Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16 og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er að fylgjast með beinu streymi í spilara að neðan. Viðskipti innlent 16.3.2023 08:55