Skoðun

Hugum að heyrn

Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar

Sagt er að menn hafir fimm skilningarvit eða skynfæri: Sjón, heyrn, lyktarskyn, snertiskyn og bragðskyn. Öll eru þau jafn mikilvæg. Þeir sem fæðast með heyrn reiða sig mikið á hana og vilja halda í hana sem lengst. Með snemmtækri íhlutun og forvörnum er hægt að kortleggja og bregðast við ef svo sé ekki raunin. Fólk á öllum aldri býr við skerta heyrn og með hækkandi aldri minnkar heyrnin, um eftirlaunaaldur má búast við tvöföldum fjölda heyrnarskertra einstaklinga. Einn af hverjum sex Íslendingum með skerta heyrn.

Mennta þarf fólk í heyrnarfræðum

Það er bagalegt fyrir þá sem búa við heyrnarskerðingu að geta ekki gengið að þeirri þjónustu sem byggð hefur verið upp á síðustu áratugum með vissu. Eins og staðan er í dag eru um 2000 manns á biðlista hjá Heyrnar og talmeinastöð Íslands (Hér eftir HTÍ). Ástæðan er margvísleg, það vantar sérmenntað fólk til starfa auk þess sem húsnæðið sem stofnunin hefur verið í síðastliðin 50 ár er ekki hentug fyrir starfsemi af þessu tagi og fyrir utan að það er löngu sprungið. Einstaklingar með kuðungsígræðslu geta ekki leitað annað eftir sérfræðiaðstoð líkt og þeim sem sinna greiningu og talmeinaþjónustu. HTÍ gegnir skyldum og hefur þjónustað einstaklinga sem búa við heyrnarskerðingu sl. 40 ár. HTÍ sér um heyrnarmælingu nýbura, greiningu, meðferð og endurhæfingu heyrnarskertra barna og fullorðinna. Þá sinnir HTÍ einnig ráðgjafahlutverk til foreldra, skóla og dvalarheimila svo eitthvað sé nefnt. Heyrnarskert börn og unglingar sem eru undir reglulegu eftirliti HTÍ eru um 300 talsins.

Nú stendur HTÍ frammi fyrir þeirri erfiðu stöðu að ekki fæst fólk með þá sérmenntun sem til þarf svo hægt sé að halda svona starfsemi gangandi. Með hækkandi aldri þjóðarinnar má gera ráð fyrir að í hópi fullorðinna með væga eða slæma heyrnarskerðingu fjölgi um 20 - 30 þúsund manns á næstu 20 árum. Því er brýnt að fara í átak að mennta fólk í heyrnarfræðum hér á landi bæði í framhaldsskólum og í háskólum. Í vor fól Heilbrigðisráðuneytið Landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu að skoða leiðir til að skapa námstækifæri á þessu sviði. Heilbrigðisbraut Fjölbrautaskólans í Ármúla hefur þegar hafið undirbúning námsins en til þess að byggja upp heildstætt nám skiptir máli skiptir máli að HTÍ sé í stakk búin að taka sinna nemendum sem fari í nám í heyrnartækni.

Heyrumst!

Það er mikilvægt að heildstæð þjónusta sé tryggð og það er þjóðhagslega hagkvæmt að halda henni uppi, því það fjölgar stöðugt í þeim hópi sem þarf á þessari þjónustu að halda. Við verðum að koma í veg fyrir að fólk einangrast félagslega og sé jafnvel frá vinnu vegna skorti á viðeigandi úrræðum.

Höfundur er þingmaður Framsóknar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×