Hernaður Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Uppreisnar- og vígamenn höfðu í morgun náð tökum á bróðurparti Aleppo-borgar í Idlib héraði í Sýrlandi eftir umfangsmikla skyndisókn og hafa þeir einnig náð tökum á stóru svæði kringum borgina á undanförnum þremur dögum. Í nótt tóku uppreisnarmenn kastala Aleppo, í miðri borginni, og í morgun lýsti ríkisstjórn Sýrlands því yfir að herinn hefði hörfað frá borginni. Erlent 30.11.2024 08:44 Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Uppreisnar- og vígamenn hafa sótt hratt inn í borgina Aleppo í Idlib-héraði í Sýrlandi í dag. Svo virðist sem að varnir hers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hafi brostið og hafa stórir hlutar borgarinnar, sem var sú stærsta í Sýrlandi á árum áður fallið. Þá hafa fregnir borist af því að umfangsmikil vopnabúr hafi fallið í hendur uppreisnarmanna. Erlent 29.11.2024 14:14 Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Ríkisstjórn Tjad tilkynnti í gær að binda ætti enda á varnarsamstarf með Frakklandi og mun það væntanlega fela í sér brotthvarf franskra hermanna þaðan. Tjad er síðasta ríkið á Sahelsvæðinu þar sem Frakkar eru enn með viðveru, eftir að þeim var vísað frá Búrkína Fasó, Malí og Níger í kjölfar valdarána. Erlent 29.11.2024 13:33 Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur hótað því að nota Oreshnik-eldflaugar til að gera árásir á Kænugarð og segir afl vopnsins sambærilegt við kjarnorkuvopn ef ítrekaðar árásir eru gerðar á sama skotmark. Erlent 29.11.2024 06:40 Auka alþjóðasamvinnu í ljósi vaxandi spennu Aukin áhersla hefur verið lögð á þátttöku Íslands í alþjóðasamvinnu vegna mikilla breytinga og aukinnar spennu í sviði alþjóðasamskipta á undanförnum árum. Þátttaka Íslands í starfi Atlantshafsbandalagsins hefur verið aukin og hefur sérstök áhersla verið lögð á öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 28.11.2024 15:19 Sækja óvænt og hratt að Aleppo Uppreisnarmenn og vígahópar gerðu í gær umfangsmiklar árásir á hersveitir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og aðrar sveitir sem styðja hann vestur af borginni Aleppo í Idlib-héraði í gær. Útlit er fyrir að hóparnir hafi lagt undir sig stórt svæði við borgina og að sóknin hafi náð að jaðri borgarinnar. Erlent 28.11.2024 14:00 Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Skemmdarverk útsendara Rússa í Evrópu gæti að endingu leitt til virkjunar fimmtu greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um sameiginlegar varnir aðildarríkja. Þetta sagði yfirmaður einnar leyniþjónustu Þýskalands á ráðstefnu í gær en Rússar hafa á undanförnum mánuðum og jafnvel árum verið sakaðir um skemmdarverk, banatilræði og annarskonar árásir í Evrópu. Erlent 28.11.2024 11:14 Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Rússar hafa gert harðar og umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu í nótt. Erlent 28.11.2024 07:21 Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27.11.2024 14:47 Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefur tilkynnt að Norðmenn ætli sér að auka fjárhagslegan stuðning við Úkraínumenn á næsta ári, eftir að hafa ákveðið að draga töluvert úr honum. Í heildina stendur til að veita Úkraínumönnum að minnsta kosti þrjátíu milljarða norskra króna á næsta ári, eftir viðræður við stjórnarandstöðuna. Erlent 27.11.2024 07:02 Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27.11.2024 06:45 Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26.11.2024 20:10 Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Ísraelski herinn tilkynnti í dag umfangsmiklar loftárásir í Beirút, höfuðborg Líbanon. Þær voru tilkynntar skömmu áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun funda með ráðherrum sínum um mögulegt vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna. Erlent 26.11.2024 14:12 Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Rússar gerðu sína umfangsmestu drónaárás á Úkraínu í nótt. Ráðamenn í Úkraínu segja 188 dróna hafa verið notaða til árásarinnar en Rússar hafa aldrei áður notað svo marga dróna á einum degi. Árásin beindist að orkuvinnviðum í Úkraínu og ollu drónarnir skemmdum á íbúðarhúsum í nokkrum héruðum landsins. Erlent 26.11.2024 10:34 Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Sjö særðust í umfangsmikilli árás Hezbollah á Ísrael í gær en samtökin eru talin hafa skotið um 250 eldflaugum og drónum yfir landamærin. Sumar eldflauganna náðu til Tel Aviv. Erlent 25.11.2024 07:08 Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir hafa rekið Gennady Anashkin herforingja vegna rangra skýrslna sem hann mun hafa sent yfirmönnum sínum. Hann stýrði aðgerðum rússneska hersins í austurhluta Úkraínu. Erlent 24.11.2024 16:09 Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir. Innlent 23.11.2024 18:10 Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Umfangsmikil loftárás Ísraela í Beirút í Líbanon í nótt jafnaði fjölbýlishús við jörðu. Að minnsta kosti ellefu eru látnir og rúmlega tuttugu særðir en talið er að báðar tölur muni hækka. Erlent 23.11.2024 08:34 Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Rússar hafa sent loftvarnarkerfi og flugskeyti til Norður-Kóreu og er það í skiptum fyrir hermenn sem sendir hafa verið til Rússlands. Þá hafa Norðurkóreumenn einnig fengið tækni varðandi gervihnetti frá Rússum, samkvæmt þjóðaröryggisráðherra Suður-Kóreu. Erlent 22.11.2024 13:31 Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir notkun Rússa á langdrægri eldflaug gegn Úkraínu fela í sér umtalsverða stigmögnun átaka. Hann kallar eftir fordæmingu og viðbrögðum alþjóðasamfélagsins. Erlent 22.11.2024 06:48 Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa hafa tekið að minnsta kosti tíu úkraínska stríðsfanga af lífi í Kúrsk-héraði á dögunum. Aftakan var fönguð á myndband með dróna en slíkum myndböndum af aftökum og myndböndum sem rússneskir hermenn hafa sjálfir tekið, hefur farið verulega fjölgandi á undanförnum vikum. Erlent 21.11.2024 16:51 Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael, og gegn Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri og tveimur öðrum leiðtogum Hamas-samtakanna sem er dánir. Erlent 21.11.2024 12:13 Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið svokallaðri ICBM eldflaug að Dnipro-borg í Úkraínu í nótt. Sé það rétt er það í fyrsta sinn sem Rússar beita slíku vopni en slíkar skotflaugar geta borið kjarnorkuvopn nánast hvert sem er í heiminum en þessi eldflaug er sögð hafa borið hefðbundna sprengjuodda. Erlent 21.11.2024 10:52 Segir Biden „hella olíu á eldinn“ Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sakaði Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, í morgun um að „hella olíu á eldinn“ með því að veita Úkraínumönnum leyfi til að nota bandarískar eldflaugar til árása í Rússlandi. Erlent 18.11.2024 13:48 Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Rússar hafa látið sprengjum rigna úr lofti yfir orkuinnviði víðsvegar um Úkraínu í nótt og rafmagn hefur verið tekið af í þremur héruðum vegna þess. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu frá því í lok sumars. Erlent 17.11.2024 09:12 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Úkraínumenn búast við enn umfangsmeiri árásum Rússa á næstu mánuðum í aðdraganda þess að Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, tekur aftur við völdum í lok janúar. Báðar fylkingar vilja styrkja stöðu sína áður en Trump kemur sér fyrir í Hvíta húsinu en hann hefur sagt að hann vilji binda skjótan enda á stríðið. Erlent 16.11.2024 08:03 Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Ísraelar vörpuðu sprengjum á leynilega rannsóknarstöð í Íran þar sem unnið er að þróun kjarnorkuvopna. Þessi árás var hluti af umfangsmikilli árás á Íran í október, eftir að Íranar skutu fjölmörgum skotflaugum að Ísrael. Erlent 15.11.2024 14:28 Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Trump-liðar hafa skrifað drög af forsetatilskipun um að stofna „stríðsmanna-nefnd“ sem ætlað yrði að fara yfir störf bandarískra her- og flotaforingja og leggja til að reka þá sem þykja ekki störfum sínum hæfir. Nefndin yrðu skipuð fyrrverandi yfirmönnum í herafla Bandaríkjanna sem myndu senda tillögur til Trumps, sem hefur sagt þörf á að reka „woke“ bandaríska herforingja. Erlent 13.11.2024 14:38 Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Ráðamenn í Úkraínu segja rússneska hermenn taka sífellt fleiri úkraínska stríðsfanga af lífi. Oft á tíðum hafi stríðsfangar verið skotnir til bana í návígi, eftir að þeir hafa verið teknir höndum og hafa Rússar jafnvel tekið sig upp taka menn af lífi og birt myndböndin á netinu. Erlent 13.11.2024 10:55 Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Bandarískir flugmenn framkvæmdu í gær loftárásir á níu skotmörk tengd vígahópum á vegum íranska byltingarvarðarins í Sýrlandi. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna á svæðinu segja árásirnar hafa verið gerðar vegna ítrekaðra árása á bandaríska hermenn í austurhluta Sýrlands. Erlent 12.11.2024 09:51 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 54 ›
Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Uppreisnar- og vígamenn höfðu í morgun náð tökum á bróðurparti Aleppo-borgar í Idlib héraði í Sýrlandi eftir umfangsmikla skyndisókn og hafa þeir einnig náð tökum á stóru svæði kringum borgina á undanförnum þremur dögum. Í nótt tóku uppreisnarmenn kastala Aleppo, í miðri borginni, og í morgun lýsti ríkisstjórn Sýrlands því yfir að herinn hefði hörfað frá borginni. Erlent 30.11.2024 08:44
Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Uppreisnar- og vígamenn hafa sótt hratt inn í borgina Aleppo í Idlib-héraði í Sýrlandi í dag. Svo virðist sem að varnir hers Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hafi brostið og hafa stórir hlutar borgarinnar, sem var sú stærsta í Sýrlandi á árum áður fallið. Þá hafa fregnir borist af því að umfangsmikil vopnabúr hafi fallið í hendur uppreisnarmanna. Erlent 29.11.2024 14:14
Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Ríkisstjórn Tjad tilkynnti í gær að binda ætti enda á varnarsamstarf með Frakklandi og mun það væntanlega fela í sér brotthvarf franskra hermanna þaðan. Tjad er síðasta ríkið á Sahelsvæðinu þar sem Frakkar eru enn með viðveru, eftir að þeim var vísað frá Búrkína Fasó, Malí og Níger í kjölfar valdarána. Erlent 29.11.2024 13:33
Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur hótað því að nota Oreshnik-eldflaugar til að gera árásir á Kænugarð og segir afl vopnsins sambærilegt við kjarnorkuvopn ef ítrekaðar árásir eru gerðar á sama skotmark. Erlent 29.11.2024 06:40
Auka alþjóðasamvinnu í ljósi vaxandi spennu Aukin áhersla hefur verið lögð á þátttöku Íslands í alþjóðasamvinnu vegna mikilla breytinga og aukinnar spennu í sviði alþjóðasamskipta á undanförnum árum. Þátttaka Íslands í starfi Atlantshafsbandalagsins hefur verið aukin og hefur sérstök áhersla verið lögð á öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 28.11.2024 15:19
Sækja óvænt og hratt að Aleppo Uppreisnarmenn og vígahópar gerðu í gær umfangsmiklar árásir á hersveitir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, og aðrar sveitir sem styðja hann vestur af borginni Aleppo í Idlib-héraði í gær. Útlit er fyrir að hóparnir hafi lagt undir sig stórt svæði við borgina og að sóknin hafi náð að jaðri borgarinnar. Erlent 28.11.2024 14:00
Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Skemmdarverk útsendara Rússa í Evrópu gæti að endingu leitt til virkjunar fimmtu greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um sameiginlegar varnir aðildarríkja. Þetta sagði yfirmaður einnar leyniþjónustu Þýskalands á ráðstefnu í gær en Rússar hafa á undanförnum mánuðum og jafnvel árum verið sakaðir um skemmdarverk, banatilræði og annarskonar árásir í Evrópu. Erlent 28.11.2024 11:14
Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Rússar hafa gert harðar og umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu í nótt. Erlent 28.11.2024 07:21
Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því. Erlent 27.11.2024 14:47
Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefur tilkynnt að Norðmenn ætli sér að auka fjárhagslegan stuðning við Úkraínumenn á næsta ári, eftir að hafa ákveðið að draga töluvert úr honum. Í heildina stendur til að veita Úkraínumönnum að minnsta kosti þrjátíu milljarða norskra króna á næsta ári, eftir viðræður við stjórnarandstöðuna. Erlent 27.11.2024 07:02
Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27.11.2024 06:45
Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26.11.2024 20:10
Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Ísraelski herinn tilkynnti í dag umfangsmiklar loftárásir í Beirút, höfuðborg Líbanon. Þær voru tilkynntar skömmu áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun funda með ráðherrum sínum um mögulegt vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna. Erlent 26.11.2024 14:12
Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Rússar gerðu sína umfangsmestu drónaárás á Úkraínu í nótt. Ráðamenn í Úkraínu segja 188 dróna hafa verið notaða til árásarinnar en Rússar hafa aldrei áður notað svo marga dróna á einum degi. Árásin beindist að orkuvinnviðum í Úkraínu og ollu drónarnir skemmdum á íbúðarhúsum í nokkrum héruðum landsins. Erlent 26.11.2024 10:34
Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás Sjö særðust í umfangsmikilli árás Hezbollah á Ísrael í gær en samtökin eru talin hafa skotið um 250 eldflaugum og drónum yfir landamærin. Sumar eldflauganna náðu til Tel Aviv. Erlent 25.11.2024 07:08
Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir hafa rekið Gennady Anashkin herforingja vegna rangra skýrslna sem hann mun hafa sent yfirmönnum sínum. Hann stýrði aðgerðum rússneska hersins í austurhluta Úkraínu. Erlent 24.11.2024 16:09
Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir. Innlent 23.11.2024 18:10
Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Umfangsmikil loftárás Ísraela í Beirút í Líbanon í nótt jafnaði fjölbýlishús við jörðu. Að minnsta kosti ellefu eru látnir og rúmlega tuttugu særðir en talið er að báðar tölur muni hækka. Erlent 23.11.2024 08:34
Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Rússar hafa sent loftvarnarkerfi og flugskeyti til Norður-Kóreu og er það í skiptum fyrir hermenn sem sendir hafa verið til Rússlands. Þá hafa Norðurkóreumenn einnig fengið tækni varðandi gervihnetti frá Rússum, samkvæmt þjóðaröryggisráðherra Suður-Kóreu. Erlent 22.11.2024 13:31
Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir notkun Rússa á langdrægri eldflaug gegn Úkraínu fela í sér umtalsverða stigmögnun átaka. Hann kallar eftir fordæmingu og viðbrögðum alþjóðasamfélagsins. Erlent 22.11.2024 06:48
Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa hafa tekið að minnsta kosti tíu úkraínska stríðsfanga af lífi í Kúrsk-héraði á dögunum. Aftakan var fönguð á myndband með dróna en slíkum myndböndum af aftökum og myndböndum sem rússneskir hermenn hafa sjálfir tekið, hefur farið verulega fjölgandi á undanförnum vikum. Erlent 21.11.2024 16:51
Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael, og gegn Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri og tveimur öðrum leiðtogum Hamas-samtakanna sem er dánir. Erlent 21.11.2024 12:13
Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið svokallaðri ICBM eldflaug að Dnipro-borg í Úkraínu í nótt. Sé það rétt er það í fyrsta sinn sem Rússar beita slíku vopni en slíkar skotflaugar geta borið kjarnorkuvopn nánast hvert sem er í heiminum en þessi eldflaug er sögð hafa borið hefðbundna sprengjuodda. Erlent 21.11.2024 10:52
Segir Biden „hella olíu á eldinn“ Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sakaði Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, í morgun um að „hella olíu á eldinn“ með því að veita Úkraínumönnum leyfi til að nota bandarískar eldflaugar til árása í Rússlandi. Erlent 18.11.2024 13:48
Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Rússar hafa látið sprengjum rigna úr lofti yfir orkuinnviði víðsvegar um Úkraínu í nótt og rafmagn hefur verið tekið af í þremur héruðum vegna þess. Árásirnar eru sagðar þær umfangsmestu frá því í lok sumars. Erlent 17.11.2024 09:12
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Næstu mánuðir skipta sköpum Úkraínumenn búast við enn umfangsmeiri árásum Rússa á næstu mánuðum í aðdraganda þess að Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, tekur aftur við völdum í lok janúar. Báðar fylkingar vilja styrkja stöðu sína áður en Trump kemur sér fyrir í Hvíta húsinu en hann hefur sagt að hann vilji binda skjótan enda á stríðið. Erlent 16.11.2024 08:03
Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Ísraelar vörpuðu sprengjum á leynilega rannsóknarstöð í Íran þar sem unnið er að þróun kjarnorkuvopna. Þessi árás var hluti af umfangsmikilli árás á Íran í október, eftir að Íranar skutu fjölmörgum skotflaugum að Ísrael. Erlent 15.11.2024 14:28
Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Trump-liðar hafa skrifað drög af forsetatilskipun um að stofna „stríðsmanna-nefnd“ sem ætlað yrði að fara yfir störf bandarískra her- og flotaforingja og leggja til að reka þá sem þykja ekki störfum sínum hæfir. Nefndin yrðu skipuð fyrrverandi yfirmönnum í herafla Bandaríkjanna sem myndu senda tillögur til Trumps, sem hefur sagt þörf á að reka „woke“ bandaríska herforingja. Erlent 13.11.2024 14:38
Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Ráðamenn í Úkraínu segja rússneska hermenn taka sífellt fleiri úkraínska stríðsfanga af lífi. Oft á tíðum hafi stríðsfangar verið skotnir til bana í návígi, eftir að þeir hafa verið teknir höndum og hafa Rússar jafnvel tekið sig upp taka menn af lífi og birt myndböndin á netinu. Erlent 13.11.2024 10:55
Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Bandarískir flugmenn framkvæmdu í gær loftárásir á níu skotmörk tengd vígahópum á vegum íranska byltingarvarðarins í Sýrlandi. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna á svæðinu segja árásirnar hafa verið gerðar vegna ítrekaðra árása á bandaríska hermenn í austurhluta Sýrlands. Erlent 12.11.2024 09:51