Reykjavík Kannast ekki við áform um brjóstmynd úr bronsi Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, segir það aldrei hafa komið til tals og hvað þá til framkvæmdar að láta gera brjóstmynd úr bronsi af sjálfum sér til að skreyta Ráðhús Reykjavíkur. Innlent 27.11.2024 15:30 Krefjast úrbóta á leikskólastarfi í leikskólanum Lundi Vissum skilyrðum leikskólastarfsins í leikskólanum Lundi var ábótavant þegar starfsfólk skóla- og frístundasvið fór í óboðað eftirlit í leikskólanum í upphafi mánaðar. Skóla- og frístundasvið hefur krafist úrbóta. Greining og eftirfylgni í leikskólanum hefur staðið yfir stærstan hluta nóvember og stendur enn samkvæmt svari frá skóla- og frístundasviði vegna málsins. Innlent 27.11.2024 15:29 Alls 70 prósent grunnskóla í Reykjavík símalausir Alls eru 26 skólar í Reykjavík símalausir, eða alls 70 prósent þeirra. Tólf skólar eru það ekki, eða 30 prósent. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks sem lagt var fyrir fund skóla- og frístundaráðs í borginni. Skóla- og frístundasvið sendi spurningalista til allra skólastjóra borgarinnar um málið. Innlent 27.11.2024 14:08 Plan í skipulags- og samgöngumálum í lítilli bílaborg Meirihluti borgarstjórnar er með plan í skipulags- og samgöngumálum. Já, þið lásuð rétt, það er ekki bara Samfylkingin sem er með plan heldur líka Viðreisn, Framsókn og Píratar. Skoðun 27.11.2024 11:03 Svik og prettir reyndust falsfréttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna einstaklinga sem voru sakaðir um að hafa komið sér í gistingu á hóteli í póstnúmerinu 104 „með svikum og prettum“. Innlent 27.11.2024 06:17 FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Mikil ánægja ríkir í Breiðholti með þá ákvörðun ríkis og borgar að stækka Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni sem ráðgert er að rísi 2026. Innlent 26.11.2024 21:02 Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Ekið var á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi um sexleytið í dag. Vegfarandinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi. Innlent 26.11.2024 18:53 Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Pítsastaðnum Blackbox í Borgartúni hefur verið lokað. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn staðarins en viðskiptavinir sem áttu staðinn bókaðan komu að læstum dyrum um helgina. Viðskipti innlent 26.11.2024 17:52 Þéttingarstefnan í Reykjavík er efnahagslegt vandamál Íbúar í Reykjavík sitja alltof margir fastir í umferðaröngþveiti á leið til og frá vinnu og skóla. Jafnframt er íbúða- og lóðaskortur áberandi sem og ásælni borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Framsóknar, í að fórna grænum svæðum í borginni fyrir skammvinnan gróða. Þessi staða skýrist alfarið af stefnu borgaryfirvalda í skipulags- og samgöngumálum. Ef ekki verður breytt um stefnu er morgunljóst að staðan mun versna stöðugt næstu árin með enn þyngri umferðarhnútum og íbúðaskorti. Við svo verður ekki búið. Skoðun 26.11.2024 16:30 Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Nemendur í fjórða bekk Laugarnesskóla í Reykjavík munu flytja tímabundið í húsnæði KSÍ vegna framkvæmda í aðalbyggingu skólans. Innlent 26.11.2024 16:10 Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið. Innlent 26.11.2024 15:18 Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Fyrsta skóflustungan að nýrri verknámsaðstöðu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík var tekin í morgun. Innlent 26.11.2024 12:44 Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með skýra mynd af atvikum þegar tæplega sjötug kona lést í Breiðholti í Reykjavík þann 13. október síðastliðinn. Sonur hennar er grunaður um að hafa ráðið henni bana. Innlent 26.11.2024 12:11 Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Skeifukötturinn Diego er fundinn, heill á húfi. Hans hafði verið leitað af fjölda fólks síðan í fyrradag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir köttinn hafa verið tekinn ófrjálsri hendi, en hann fannst í heimahúsi í morgun. Innlent 26.11.2024 11:51 Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn Hvarf kattarins Diego er ekki formlega komið inn á borð lögreglu en fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leit að kettinum sem var numinn á brott úr Skeifunni í fyrradag. Sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu segist sjaldan hafa orðið vör við annan eins áhuga á leit að dýri. Innlent 26.11.2024 11:37 Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Rekstur Orkuveitunnar skilaði 5,1 milljarðs króna afgangi fyrstu níu mánuði ársins. Það er 44 prósenta aukning frá sama tímabili fyrra árs og góð undirstaða fyrirhugaðs vaxtar Orkuveitunnar á næstu árum, að mati Sævars Freys Þráinssonar forstjóra. Viðskipti innlent 26.11.2024 10:35 Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Fjöldi sjálfboðaliða leggja hönd á plóg við leitina að kettinum Diego, einum frægasta ketti landsins, var numinn á brott úr versluninni A4 í Skeifunni í gær og ekkert hefur spurst til hans síðan. Atvikið náðist á öryggismyndavél en vinir og vandamenn kattarins vona að hann skili sér heill heim. Innlent 25.11.2024 19:01 Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Fjöldi fólks tekur nú þátt í leit að kettinum Diego, sem hvarf í gærkvöldi. Talið er að honum hafi verið stolið, en vitnum ber ekki saman um hvort karl eða kona tók köttinn ófrjálsri hendi. Talskona dýravinasamtaka heitir viðkomandi fullum trúnaði, skili hann kettinum. Innlent 25.11.2024 17:55 Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43 Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Fréttir af hvarfi kattarins Diego vöktu athygli í gær en hann hefur verið sagður einn frægasti köttur landsins. Grunur er um að Diego hafi verið rænt í Skeifunni en kötturinn hefur lengi verið fastagestur í verslunum Hagkaupa og A4. Verslunarstjóri A4 í Skeifunni staðfestir að á öryggismyndavélum megi sjá hvar meintur ræningi hafi gengið inn í verslunina á sjöunda tímanum í gærkvöldi og haft köttinn með sér á brott. Innlent 25.11.2024 14:14 Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Rannsókn lögreglunnar á stunguárás við Skúlagötu í Reykjavík, sem átti sér stað á Menningarnótt, 24. ágúst síðastliðinn, er lokið. Lögregla hefur sent gögn málsins til Héraðssakóknara. Innlent 25.11.2024 11:40 Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá menn í gærkvöldi eða nótt eftir að tilkynning barst um að menn hefðu ruðst inn í íbúð í Vesturbænum. Málið er í rannsókn. Innlent 25.11.2024 06:14 Frægasti köttur landsins týndur Kötturinn Diego, einn allra frægasti köttur landsins, er týndur. Eigandinn greinir frá þessu í aðdaéndahóp kattarins á Facebook, sem telur um fimmtán þúsund manns. Ef marka má umræður virðist honum hafa verið rænt úr Skeifunni. Innlent 24.11.2024 20:43 Ók á ljósastaur við Grensásveg Ökumaður ók bifreið á ljósastaur við Grensásveg á ellefta tímanum í dag. Sjúkrabíll var sendur á svæðið en engin meiriháttar slys urðu á fólki. Innlent 23.11.2024 23:46 Skautasvellið opnað í tíunda sinn Skautasvell Nova og Orkusölunnar á Ingólfstorgi var formlega opnað í gærkvöldi. Flytja þarf inn sérfræðinga að utan til að setja skautasvellið upp. Lífið 23.11.2024 09:11 Braut rúðu í lögreglubíl Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt var mikið af útköllum í miðbænum vegna ölvunar og óláta. Þá barst einnig tilkynning um hópslagsmál þar og að minnsta kosti eina líkamsárás. Innlent 23.11.2024 07:34 Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Maður sem grunaður er um umfangsmikil rán og þjófnað á höfuðborgarsvæðinu var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Er það eftir að nokkur hundruð kíló af kjötvörum, fatnaði, raftækjum og öðru fannst á heimili hans. Innlent 22.11.2024 13:47 Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík Losun gróðurhúsalofttegunda dróst saman um tæp tvö og hálft prósent í Reykjavík í fyrra. Meirihluti losunarinnar kemur frá samgöngum og byggingariðnaði. Bílaumferð í Reykjavík einni og sér var uppspretta um tíu prósenta samfélagslosunar á Íslandi. Innlent 22.11.2024 13:29 Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022. Innlent 22.11.2024 13:17 Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu hefur fest kaup á íbúð við Meistaravelli í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðina keypti hún af hjónunum Viktori Bjarka Arnarsyni, fyrrverandi knattspyrnumaður og þjálfari, og Álfrúnu Pálsdóttur. Lífið 22.11.2024 12:33 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 334 ›
Kannast ekki við áform um brjóstmynd úr bronsi Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, segir það aldrei hafa komið til tals og hvað þá til framkvæmdar að láta gera brjóstmynd úr bronsi af sjálfum sér til að skreyta Ráðhús Reykjavíkur. Innlent 27.11.2024 15:30
Krefjast úrbóta á leikskólastarfi í leikskólanum Lundi Vissum skilyrðum leikskólastarfsins í leikskólanum Lundi var ábótavant þegar starfsfólk skóla- og frístundasvið fór í óboðað eftirlit í leikskólanum í upphafi mánaðar. Skóla- og frístundasvið hefur krafist úrbóta. Greining og eftirfylgni í leikskólanum hefur staðið yfir stærstan hluta nóvember og stendur enn samkvæmt svari frá skóla- og frístundasviði vegna málsins. Innlent 27.11.2024 15:29
Alls 70 prósent grunnskóla í Reykjavík símalausir Alls eru 26 skólar í Reykjavík símalausir, eða alls 70 prósent þeirra. Tólf skólar eru það ekki, eða 30 prósent. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks sem lagt var fyrir fund skóla- og frístundaráðs í borginni. Skóla- og frístundasvið sendi spurningalista til allra skólastjóra borgarinnar um málið. Innlent 27.11.2024 14:08
Plan í skipulags- og samgöngumálum í lítilli bílaborg Meirihluti borgarstjórnar er með plan í skipulags- og samgöngumálum. Já, þið lásuð rétt, það er ekki bara Samfylkingin sem er með plan heldur líka Viðreisn, Framsókn og Píratar. Skoðun 27.11.2024 11:03
Svik og prettir reyndust falsfréttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna einstaklinga sem voru sakaðir um að hafa komið sér í gistingu á hóteli í póstnúmerinu 104 „með svikum og prettum“. Innlent 27.11.2024 06:17
FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Mikil ánægja ríkir í Breiðholti með þá ákvörðun ríkis og borgar að stækka Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni sem ráðgert er að rísi 2026. Innlent 26.11.2024 21:02
Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Ekið var á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi um sexleytið í dag. Vegfarandinn var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítalann í Fossvogi. Innlent 26.11.2024 18:53
Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Pítsastaðnum Blackbox í Borgartúni hefur verið lokað. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn staðarins en viðskiptavinir sem áttu staðinn bókaðan komu að læstum dyrum um helgina. Viðskipti innlent 26.11.2024 17:52
Þéttingarstefnan í Reykjavík er efnahagslegt vandamál Íbúar í Reykjavík sitja alltof margir fastir í umferðaröngþveiti á leið til og frá vinnu og skóla. Jafnframt er íbúða- og lóðaskortur áberandi sem og ásælni borgarstjórnarmeirihluta Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Framsóknar, í að fórna grænum svæðum í borginni fyrir skammvinnan gróða. Þessi staða skýrist alfarið af stefnu borgaryfirvalda í skipulags- og samgöngumálum. Ef ekki verður breytt um stefnu er morgunljóst að staðan mun versna stöðugt næstu árin með enn þyngri umferðarhnútum og íbúðaskorti. Við svo verður ekki búið. Skoðun 26.11.2024 16:30
Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Nemendur í fjórða bekk Laugarnesskóla í Reykjavík munu flytja tímabundið í húsnæði KSÍ vegna framkvæmda í aðalbyggingu skólans. Innlent 26.11.2024 16:10
Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið. Innlent 26.11.2024 15:18
Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Fyrsta skóflustungan að nýrri verknámsaðstöðu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík var tekin í morgun. Innlent 26.11.2024 12:44
Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með skýra mynd af atvikum þegar tæplega sjötug kona lést í Breiðholti í Reykjavík þann 13. október síðastliðinn. Sonur hennar er grunaður um að hafa ráðið henni bana. Innlent 26.11.2024 12:11
Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Skeifukötturinn Diego er fundinn, heill á húfi. Hans hafði verið leitað af fjölda fólks síðan í fyrradag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir köttinn hafa verið tekinn ófrjálsri hendi, en hann fannst í heimahúsi í morgun. Innlent 26.11.2024 11:51
Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn Hvarf kattarins Diego er ekki formlega komið inn á borð lögreglu en fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leit að kettinum sem var numinn á brott úr Skeifunni í fyrradag. Sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu segist sjaldan hafa orðið vör við annan eins áhuga á leit að dýri. Innlent 26.11.2024 11:37
Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Rekstur Orkuveitunnar skilaði 5,1 milljarðs króna afgangi fyrstu níu mánuði ársins. Það er 44 prósenta aukning frá sama tímabili fyrra árs og góð undirstaða fyrirhugaðs vaxtar Orkuveitunnar á næstu árum, að mati Sævars Freys Þráinssonar forstjóra. Viðskipti innlent 26.11.2024 10:35
Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Fjöldi sjálfboðaliða leggja hönd á plóg við leitina að kettinum Diego, einum frægasta ketti landsins, var numinn á brott úr versluninni A4 í Skeifunni í gær og ekkert hefur spurst til hans síðan. Atvikið náðist á öryggismyndavél en vinir og vandamenn kattarins vona að hann skili sér heill heim. Innlent 25.11.2024 19:01
Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Fjöldi fólks tekur nú þátt í leit að kettinum Diego, sem hvarf í gærkvöldi. Talið er að honum hafi verið stolið, en vitnum ber ekki saman um hvort karl eða kona tók köttinn ófrjálsri hendi. Talskona dýravinasamtaka heitir viðkomandi fullum trúnaði, skili hann kettinum. Innlent 25.11.2024 17:55
Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43
Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Fréttir af hvarfi kattarins Diego vöktu athygli í gær en hann hefur verið sagður einn frægasti köttur landsins. Grunur er um að Diego hafi verið rænt í Skeifunni en kötturinn hefur lengi verið fastagestur í verslunum Hagkaupa og A4. Verslunarstjóri A4 í Skeifunni staðfestir að á öryggismyndavélum megi sjá hvar meintur ræningi hafi gengið inn í verslunina á sjöunda tímanum í gærkvöldi og haft köttinn með sér á brott. Innlent 25.11.2024 14:14
Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Rannsókn lögreglunnar á stunguárás við Skúlagötu í Reykjavík, sem átti sér stað á Menningarnótt, 24. ágúst síðastliðinn, er lokið. Lögregla hefur sent gögn málsins til Héraðssakóknara. Innlent 25.11.2024 11:40
Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá menn í gærkvöldi eða nótt eftir að tilkynning barst um að menn hefðu ruðst inn í íbúð í Vesturbænum. Málið er í rannsókn. Innlent 25.11.2024 06:14
Frægasti köttur landsins týndur Kötturinn Diego, einn allra frægasti köttur landsins, er týndur. Eigandinn greinir frá þessu í aðdaéndahóp kattarins á Facebook, sem telur um fimmtán þúsund manns. Ef marka má umræður virðist honum hafa verið rænt úr Skeifunni. Innlent 24.11.2024 20:43
Ók á ljósastaur við Grensásveg Ökumaður ók bifreið á ljósastaur við Grensásveg á ellefta tímanum í dag. Sjúkrabíll var sendur á svæðið en engin meiriháttar slys urðu á fólki. Innlent 23.11.2024 23:46
Skautasvellið opnað í tíunda sinn Skautasvell Nova og Orkusölunnar á Ingólfstorgi var formlega opnað í gærkvöldi. Flytja þarf inn sérfræðinga að utan til að setja skautasvellið upp. Lífið 23.11.2024 09:11
Braut rúðu í lögreglubíl Lögregluþjónar höfðu í nógu að snúast í nótt var mikið af útköllum í miðbænum vegna ölvunar og óláta. Þá barst einnig tilkynning um hópslagsmál þar og að minnsta kosti eina líkamsárás. Innlent 23.11.2024 07:34
Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Maður sem grunaður er um umfangsmikil rán og þjófnað á höfuðborgarsvæðinu var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Er það eftir að nokkur hundruð kíló af kjötvörum, fatnaði, raftækjum og öðru fannst á heimili hans. Innlent 22.11.2024 13:47
Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík Losun gróðurhúsalofttegunda dróst saman um tæp tvö og hálft prósent í Reykjavík í fyrra. Meirihluti losunarinnar kemur frá samgöngum og byggingariðnaði. Bílaumferð í Reykjavík einni og sér var uppspretta um tíu prósenta samfélagslosunar á Íslandi. Innlent 22.11.2024 13:29
Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Framsóknarflokkurinn mælist nú með þriggja prósenta fylgi í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu, Borgarvitanum. Yrði gengið til kosninga í sveitarstjórn í dag myndi flokkur borgarstjóra því ekki ná inn í borgarstjórn. Flokkurinn fékk 18,9 prósenta fylgi í kosningunum árið 2022. Innlent 22.11.2024 13:17
Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu hefur fest kaup á íbúð við Meistaravelli í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðina keypti hún af hjónunum Viktori Bjarka Arnarsyni, fyrrverandi knattspyrnumaður og þjálfari, og Álfrúnu Pálsdóttur. Lífið 22.11.2024 12:33