Erlendir fjárfestar buðu fúlgur fjár Erlendir fjárfestar buðu nýlega margfalt markaðsverð fyrir jörð vegna vatnsauðlinda og ásældust fjölda annarra jarða í sömu sveit að sögn bónda. Bóndinn neitaði og vill fá ábúðaskyldu á jarðir. Orkustofnun hefur þurft að bregðast við vegna aukins ágangs fyrirtækja í auðlindina. 27.11.2024 18:32
Segist sækja fé í aukafjárveitingu vegna inngildingar Barnamálaráðherra segir að fyrir atbeina núverandi fjármálaráðherra sé hægt að stórefla Ráðgjafar-og geiningarmiðstöð barna. Fé til þess sé m.a. sótt í aukafjárveitingu í fjárlögum til inngildingar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fullyrðingar barnamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun stofnunarinnar barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna. 27.11.2024 12:54
FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Mikil ánægja ríkir í Breiðholti með þá ákvörðun ríkis og borgar að stækka Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni sem ráðgert er að rísi 2026. 26.11.2024 21:02
Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Barna-og menntamálaráðherra segir skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa komið í veg fyrir að ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna hafi fengið nægt fjármagn til að sinna þjónustu sinni að fullu. Núverandi fjármálaráðherra ætli að taka á málinu. 26.11.2024 20:00
Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Bændasamtökin telja þjóðar- og fæðuöryggi stefnt í voða vegna jarðakaupa innlendra og erlendra spákaupmanna. Framkvæmdastjóri þeirra segir stjórnvöld hafa sofið á verðinum. Fjárfestar séu að stórum hluta á höttunum eftir vatnsauðlindum á bújörðum. 26.11.2024 19:02
Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Stórkostlegar aðstæður hafa skapast í frostinu til skautaiðkunar og fluglendingar á Hafravatni. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur nýttu aðstæðurnar í dag til að æfa sig á meðan skautafólk lék sér á ísnum. 25.11.2024 21:01
Tvær á toppnum Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar. 25.11.2024 21:01
Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Ráðgjafar-og greiningarstöð vantar allt tvö hundruð og fimmtíu milljónir í fjárveitingar til að geta staðið undir lögbundinni þjónustu að sögn forstjóra. Tilvísanir hafi aukist um 60 prósent síðustu ár á meðan hafi fjárveitingar verið skornar niður á fjárlögum. Verði ekki breyting þurfi stofnunin að skera niður þjónustu. 25.11.2024 12:18
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. 22.11.2024 19:01
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. 22.11.2024 13:43