Birgitta Líf með 450 þúsund króna skiptitösku Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, birti mynd af sér með son sinn í fanginu og 450 þúsund króna Blue Dior Oblique Canvas skiptitösku yfir öxlina. Lífið 26. febrúar 2024 19:14
Finnur flottari flíkur í kvenmannsdeildunum Plötusnúðurinn Egill Ásgeirsson setti sér þá reglu að ganga alltaf um í góðum skóm og vellíðan er lykillinn að stílnum hans. Hann elskar að klæða sig upp og sækir tískuinnblástur á samfélagsmiðla. Egill er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 24. febrúar 2024 11:31
„Yfirleitt er allt sem er gefandi líka krefjandi“ Búningahönnuðurinn Karen Briem skráði sig í meistaranám í búningahönnun um þrítugt. Hún elskar að segja sögur og skapa karaktera en hún sér um búningana fyrir söngleikinn Eitruð lítil pilla, sem verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld. Tíska og hönnun 23. febrúar 2024 09:01
Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni? Tíska og hönnun 22. febrúar 2024 11:30
Flottustu fermingartrendin hjá Galleri 17 í sannkallaðri „fashion“töku „Við ákváðum að breyta um stefnu og fara í meira „fashion” töku í ár. Hingað til höfum við fókusað á stílhreinar og tímalausar fermingartökur en í ár ákváðum við að leika okkur aðeins meira með fötin og hafa þetta lifandi og skemmtilegt,“ segir Tania Lind Fodilsdóttir, markaðsstjóri NTC. Lífið samstarf 22. febrúar 2024 08:45
Hjarðhegðun Íslendinga Hjarðhegðun Íslendinga endurspeglar smæð samfélagsins og hræðsluna við það að vera utangátta. Eða hvað? Hvers vegna er landinn á einu auga bragði klæddur í samskonar skó, ferðast til sömu áfangastaðanna og kaupir eins húsgögn? Lífið 19. febrúar 2024 07:00
Hrífandi hönnunarperla við Heiðmörk Við Urriðaholtsstræti 72 í Garðabæ má finna glæsilegt 180 fermetra raðhús á tveimur hæðum með útsýni að Heiðmörk. Það sem gerir eignina afar áhugaverða er að húsið er svansvottað. Ásett verð er 147,9 milljónir. Lífið 17. febrúar 2024 14:29
Klæðir sig upp í þema fyrir öll möguleg tilefni Lífskúnstnerinn Guðný Björk Halldórsdóttir hefur gríðarlega gaman að tískunni og er óhrædd við að fara eigin leiðir. Hún nýtir hvert tilefni til að klæða sig upp í skemmtileg og frumleg föt og segir að með árunum sé hún farin að taka meiri áhættu. Guðný Björk er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 17. febrúar 2024 11:31
Heitasta tískan á heimilum landsins Það er alltaf skemmtilegt að skoða það vinsælasta í stílnum á heimilum landsmanna. Stefnur og straumar í innanhússhönnun. Lífið 16. febrúar 2024 12:30
Sjarmerandi hönnunarheimili með útsýni til sjávar Við Ásbúðartröð í Hafnarfirði má finna glæsilega endurnýjaða sérhæð á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni til sjávar. Um er að ræða 168 fermetra eign í fjölbýlishúsi frá árinu 1954. Lífið 14. febrúar 2024 21:17
Fyrirsæta fyrir tískurisa erlendis en lögfræðingur hér heima Fyrirsætan og lögfræðingurinn Kristín Lilja Sigurðardóttir hefur gengið tískupalla fyrir hátískumerki á borð við Dior og Kenzo og setið fyrir í ýmsum tískuherferðum. Nýverið var hún í ljósmyndaþætti fyrir virta tískumerkið Liberty London en blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá. Tíska og hönnun 13. febrúar 2024 13:38
Deilunni um litla rauða límmiðann lokið vegna tímamóta Norrænni deilu um hvort taka eigi lítinn rauðan límmiða af iittala glösum verður brátt lokið því rauðu miðarnir eru á undanhaldi. Finnski risinn hefur breytt allri hönnun á þessu rótgróna vörumerki og segir hönnunarstjóri á Íslandi, ákvörðunina djafra. Viðskipti innlent 11. febrúar 2024 23:01
Nýtur þess að setja sig í fyrsta sætið Tískuskvísan og lífskúnstnerinn Tinna Aðalbjörnsdóttir er annar eiganda módelskrifstofunnar Ey Agency og segir tískuna alltaf hafa verið eitt af sínum uppáhalds áhugamálum. Hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 10. febrúar 2024 11:31
Engir rauðir límmiðar lengur á Iittala Nýr listrænn stjórnandi Iittala hefur nú svipt hulunni af nýjum lit og merkingum fyrir merkið. Í stað rauða litarins sem hefur einkennt merkið í áratugi, og auðvitað rauðu límmiðana, er nú tekinn við gulur ferskari litur. Viðskipti erlent 7. febrúar 2024 08:56
Íslenskur hönnuður með fatalínu á tískuviku „Adrenalínið var alveg í hámarki eftir sýninguna,“ segir hin 24 ára gamla Thelma Gunnarsdóttir sem er nýútskrifaður fatahönnuður og nú þegar farin að taka þátt í spennandi verkefnum. Hún sýndi fatalínu sína á tískuvikunni í Kaupmannahöfn í síðustu viku en blaðamaður heyrði í henni og fékk að heyra nánar frá. Tíska og hönnun 5. febrúar 2024 13:28
Best klæddu á Grammys: Laufey skein skært í Chanel Grammy verðlaunin fóru fram í 66. skipti í gærkvöldi með pomp og prakt í Crypto höllinni í Los Angeles. Stjörnurnar glitruðu á rauða dreglinum í sínu allra fínasta pússi og þar á meðal voru Grammy verðlaunahafinn Laufey Lín og Ólafur Arnalds, sem hlaut tilnefningu. Tíska og hönnun 5. febrúar 2024 12:46
„Ég hlakka til að klæða mig upp á hverjum morgni“ Fyrirsætan, háskólaneminn og tískuáhugakonan Anna María V. Þorsteinsdóttir hefur frá unga aldri lagt upp úr því að vera alltaf vel til fara og hefur alla tíð haft sterkar skoðanir á því sem hún klæðist. Hún sækir meðal annars innblástur til eldri ítalskra karla og eldri kvenna í Kaupmannahöfn en tískufyrirmyndin er þó móðir hennar. Anna María er viðmælandi í Tískutali. Tíska og hönnun 3. febrúar 2024 11:31
„Glimmerkjóll og pinnahælar henta því miður ekki á róló“ Tískuunnandinn Vaka Vigfúsdóttir starfar hjá mannauðsdeild förðunarrisans Sephora í Kaupmannahöfn og segir tískuna stóran part af sínu lífi. Vaka er alinn upp af fatahönnuði og ljósmyndara sem hefur mótað stíl hennar og sækir hún mikla orku í klæðaburð. Vaka er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 27. janúar 2024 11:30
Tískuvikan í París: Rihanna sannkallaður senuþjófur Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar að tónlistarkonan, athafnarkonan og stórstjarnan Rihanna mætti óvænt á tískusýningu Dior í París fyrr í dag og stal senunni. Tíska og hönnun 22. janúar 2024 16:31
Mafíu-trendið sem tröllríður TikTok Samfélagsmiðlar geta haft gríðarleg áhrif á tískubylgjur hvort sem það er í fatnaði, förðun, tónlist, kvikmyndum eða öðru. Nýtt trend tröllríður nú samfélagsmiðlum á borð við TikTok og Instagram. Það snýr að ýktum glamúr stíl sem kallast mafíu-eiginkonu fagurfræðin eða „Mob wife aesthetic“. Lífið 22. janúar 2024 13:09
Fallegustu bækur í heimi til sýnis í Garðabæ Fallegustu bækur í heimi eru nú til sýnis á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Grafískur hönnuður segir að í bókverkunum sé hugsað út í minnstu smáatriði, allt frá staðsetningu blaðsíðutalsins og því hvernig titlar séu settir upp. Menning 21. janúar 2024 15:45
Klæðir sig til að líða vel en ekki til að sýna sig Kírópraktorinn og tískuunnandinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, elskar hvernig tísku, hönnun og list tekst að vekja bæði athygli og tilfinningar. Hann elskar að að klæða sig upp og tjá sig með sínum persónulega stíl en Gummi Kíró er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 20. janúar 2024 11:31
Sjóðheit föstudags förðunartrend Förðunarfræðingurinn Birkir Már Hafberg fylgist grannt með nýjum tískubylgjum innan förðunarheimsins og passar upp á að vera með puttann á púlsinum. Blaðamaður heyrði í honum og fékk hann til að deila nokkrum heitum og vinsælum förðunartrendum með lesendum Lífsins. Lífið 19. janúar 2024 09:00
FBI rannsakar kynferðisglæpi tískumógúls Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur nú til rannsóknar meint kynferðisbrot tískumógúlsins og fyrrverandi framkvæmdastjóra Abercrombie & Fitch. Rannsókninni var hrundið af stað í kjölfar fréttaumfjöllunar breska ríkisútvarpsins um málið. Erlent 17. janúar 2024 06:28
Bætti stílinn með því að fækka í fötunum Fatahönnuðurinn Guðmundur Ragnarsson, þekktur sem Mundurr, segir stíl sinn í stöðugri þróun. Hann er duglegur að selja eða láta frá sér flíkur sem hann notar lítið og er óhræddur við að prófa eitthvað nýtt. Mundurr er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 13. janúar 2024 11:30
Konan velur föt á Guardiola á leikdegi Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur greint frá því að eiginkona hans ákveði hverju hann klæðist á leikdegi. Enski boltinn 10. janúar 2024 11:30
Svava Johansen sextug og stórglæsileg á Tenerife Svava Johansen, tískudrottning og eigandi NTC stórveldisins, fagnaði sextíu ára afmæli sínum ásamt manni sínum Birni Sveinbjörnssyni og stórfjölskyldu í blíðviðrinu á Adeja-svæðinu á Tenerife í gærkvöldi. Lífið 8. janúar 2024 13:17
Tískan á Golden Globe: Bleikar bombur og litaglaðar stjörnur Verðlaunahátíðin Golden Globe fór fram í gærkvöldi á Beverly Hills hótelinu í Los Angeles. Stærstu stjörnur heimsins skinu sitt allra skærasta á rauða dreglinum en glæsilegir síðkjólar, pallíettur og litagleði voru í forgrunni. Tíska og hönnun 8. janúar 2024 11:31
Heitustu trendin fyrir 2024 Nýtt ár er gengið í garð og með nýju ári koma hinar ýmsu tískubylgjur fram á margvíslegum sviðum. Lífið á Vísi fékk til sín fjölbreyttan hóp álitsgjafa úr ólíkum áttum til að spá fyrir um heitustu trendin fyrir 2024. Lífið 8. janúar 2024 07:01
„Klæðist því sem mér finnst flott án þess að eltast við tískuna“ Dansarinn, heklarinn og listakonan Birta Ásmundsdóttir hefur bæði gaman að fjölbreytileika tískunnar og sameiningarkrafti hennar þegar fólk til dæmis klæðir sig eins. Hún elskar að blanda saman stílum og klæðist því sem henni finnst flott án þess að elta tískuna. Birta er viðmælandi í Tískutali. Tíska og hönnun 6. janúar 2024 11:31