Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mætti í blárri íþróttapeysu frá danska hönnunarmerkinu Rotate í sjónvarpsþáttinn Kappleikar á Stöð 2 í vikunni. Peysan vakti mikla athygli þar sem hún er vön á mæta í sínu fínasta pússi. Tíska og hönnun 28.11.2024 11:07
Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Það var sannkölluð skvísustemning í opnunarteiti nýrrar og betrumbættar verslunar Spúútnik Reykjavík í Kringlunni síðastliðið fimmtudagskvöld. Meðal gesta voru Heiður Ósk eigandi Reykjavík MakeUp School, þjálfarinn Gerða kennd við InShape, Elísabet Gunnars áhrifavaldur og athafnakona, Kolbrún Anna förðunarfræðingur, fyrirsæturnar Nadía Áróra og Helga Þóra og svo lengi mætti telja. Tíska og hönnun 21.11.2024 20:02
Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Förðunarfræðingurinn og hárgreiðslukonan Tinna Empera hefur haft áhuga á tísku frá blautu barnsbeini og ólst upp við það að þora að hugsa stórt. Hún flutti til New York fyrir þrettán árum síðan og hefur tekið þátt í ýmsum ævintýralegum verkefnum. Blaðamaður ræddi við Tinnu um lífið úti. Tíska og hönnun 21.11.2024 07:01
Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf 21.11.2024 07:01
Kári og Erla vilja 330 milljónir fyrir lúxusíbúð við höfnina Kári Knútsson, lýtalæknir og hluthafi í Klínikinni Ármúla, og Erla Ólafsdóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður, hafa sett íbúð sína við Bryggjugötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 330 milljónir. Lífið 13. nóvember 2024 18:01
Crocs skór nú einnig fyrir hunda Bandaríski skóframleiðandinn Crocs hóf nýverið sölu á skóm fyrir hunda. Þeir sameinuðu krafta sína við hundavöruframleiðandann Bark og hönnuðu saman nýja línu af svokölluðum Pet Clogs, eða gæludýraklossum, sem er sögð svörun við áralangri eftirspurn hundaeigenda. Lífið 11. nóvember 2024 17:01
Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Það var mikið um dýrðir í Grósku síðastliðinn fimmtudag þegar Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent með pompi og pragt. Í tilkynningu frá aðstandendum segir að dagurinn hafi hafist á því að gestir fengu góða innsýn inn í þau níu framúrskarandi og fjölbreyttu verkefni sem tilnefnd voru til verðlaunanna í ár í þremur mismunandi flokkum. Í kjölfarið var svo verðlaunaafhending með tilheyrandi fögnuði. Tíska og hönnun 11. nóvember 2024 09:30
Með 120 þúsund króna Dior der í golfi Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, nýtur lífsins með fjölskyldunni í sólinni á erlendri grundu. Hún birti mynd á Instagram af sér á golfvelli, klædd í smart golfdress og með blátt der frá franska tískuhúsinu Christian Dior. Lífið 6. nóvember 2024 15:01
Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar Menningarlífið hérlendis iðar um þessar mundir þar sem afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2024 fer fram á fimmtudag í Grósku. Menning 5. nóvember 2024 15:00
Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Það var mikil líf og fjör í LHÍ um helgina þar sem hátískan var í hávegum höfð. Annars árs fatahönnunarnemar stóðu fyrir tískusýningunni Misbrigði en sýningin var einstaklega vel sótt og færri komust að en vildu þar sem miðarnir ruku út eins og heitar lummur. Tíska og hönnun 5. nóvember 2024 11:31
Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Það vantaði ekki upp á glæsileikann á galakvöldi safnsins LACMA í Los Angeles borg um helgina þegar stórstjörnur komu saman í sínu fínasta pússi. Margir hverjir klæddust nýjustu tískustraumunum frá tískuhúsinu Gucci, þar á meðal Kim Kardashian, sem skartaði líka gömlum fjólubláum krossi frá Díönu prinsessu við mjög fleginn hvítan kjól. Tíska og hönnun 4. nóvember 2024 20:00
Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín „Markmið okkar frá upphafi var að styrkja tæknilega innviði til að efla hringrásarhagkerfið með því að gera viðskipti með elskuð föt auðveld, örugg og skemmtileg,“ segir Ásta Kristjánsdóttir, stofnandi og eigandi forritsins Regn. Ásta og hennar teymi voru stödd í Berlín um helgina til að taka á móti alþjóðlegu hönnunarverðlaununum Red Dot. Tíska og hönnun 4. nóvember 2024 09:41
Snúrunni lokað fyrir fullt og allt Hönnunarverslunin Snúran kveður íslenska fagurkerabransann innan tíðar en tíu ár eru síðan verslunin opnaði. Eigandi Snúrunnar kveðst ætla að snúa sér að öðru. Viðskipti innlent 3. nóvember 2024 20:24
Hlutir sem skapa notalega stemningu á heimilinu Nóvember er genginn í garð og vetur konungur farinn að minna á sig. Nú er tíminn til að tendra á kertum og umvefja heimilið hlýlegri stemningu. Stofurýmið er aðalvistvera fólks, en það eru oftar en ekki smáatriðin sem skipta mestu máli. Hér að neðan má finna nokkrar hugmyndir sem gefa heimilinu aukna hlýju og karakter. Lífið 2. nóvember 2024 10:01
Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun „Eyeliner. Það er eitthvað sem langflestir eru hræddir við þegar það kemur að förðun,“ segir förðunarfræðingurinn og hársnyrtirinn Rakel María sem kennir í nýjasta þætti Fagurfræða tvær einfaldar leiðir til þess að ná fram hinum fullkomna eyeliner, annars vegar vængjaðan eyeliner og kremaðan. Tíska og hönnun 1. nóvember 2024 15:02
Sænskir áhrifavaldar hrifnir af klæðaburði íslenskra kvenna Það var margt um manninn í verslun FOU22 á dögunum þegar sænsku áhrifavaldarnir og athafnakonurnar, Thérése Hellström og My Andrén, tóku á móti tískuunnendum og kynntu þeim fyrir vörum frá sænsku merkjunum Ávora og Le Scarf. Lífið 31. október 2024 15:02
Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Stórstjarnan Laufey Lín skein skært á rauða dreglinum í fyrradag á tískuverðlaunahátíð CFDA sem haldin er af vinsælustu tískuhönnuðum Bandaríkjanna. Tíska og hönnun 30. október 2024 12:02
Adidas og Ye sættast Þýski íþróttavoruframleiðandinn Adidas og rapparinn Ye, áður Kanye West, hafa náð sáttum eftir að hafa staðið í málaferlum síðan Adidas sleit samstarfi við rapparann árið 2022. Viðskipti erlent 29. október 2024 20:32
Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Mamma sagði nú bara við mig þá: Sif mín, viltu ekki bara koma heim?“ segir Sif Jakobs skartgripahönnuður og hlær. Sem þó tók það ekki í mál, hélt áfram að banka upp á dyrnar hjá skartgripaverslunum í Kaupmannahöfn þar til hún fékk loksins vinnu í skartgripaverslun. Atvinnulíf 24. október 2024 07:03
„Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið. Og þar gildir það sem almennt gildir um hörðustu samningana: Við tökum eitt ár í einu,“ segir Ragna Sara Jónsdóttir stofnandi fyrirtækisins FÓLK og hlær. Atvinnulíf 23. október 2024 07:02
Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Hrekkjavökuhátíðin hefur fest sig í sessi hérlendis á undanförnum árum og bætist stöðugt í hóp þeirra sem kjósa að klæða sig í búning 31. október. Sumir vilja fara alla leið í herlegheitunum og ákvað Lífið á Vísi því að veita lesendum innblástur þegar það kemur að hrekkjavökubúningum. Tíska og hönnun 22. október 2024 11:02
Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Glamúrinn var sannarlega í fyrirrúmi á laugardagskvöld þegar stórstjörnur heimsins komu saman í sínu fínasta pússi á galakvöldi Academy Museum í Los Angeles. Tíska og hönnun 21. október 2024 20:00
Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Ofurskvísurnar Aníta Björt og Sigrún Guðný lifa fyrir tískuna og reka nytjaverslunina Mamma Mia Vintage í miðbæ Reykjavíkur. Þær stóðu fyrir tískuteiti á dögunum þar sem skvísur bæjarins mættu í sínu fínasta pússi. Tíska og hönnun 21. október 2024 13:01
Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Tískustraumar í förðunarheiminum eru eins misjafnir og þeir eru margir en í nýjasta þætti Fagurfræði tekur Rakel fyrir hausttrendin sem slegið hafa í gegn á samfélagsmiðlinum Tik-Tok. Lífið 18. október 2024 14:01
Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Nærfatamódel á vegum Victoria's Secret sneru aftur á svið í gærkvöldi eftir sex ára hlé. Tískusýningin var því sérstaklega vegleg í þetta skiptið og fluttu einungis kvenkyns tónlistarmenn tónlistaratriði á hátíðinni. Allar helstu stjörnur fyrirsætuheimsins létu sig ekki vanta. Tíska og hönnun 16. október 2024 10:41