Áfrýjar búvörulagamálinu til Hæstaréttar Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, í máli sem varðar gildi breytinga á búvörulögum, beint til Hæstaréttar. Óbreyttur kemur dómurinn í veg fyrir að kjötafurðastöðvar séu undanþegnar samkeppnislögum. Innlent 2.12.2024 15:51
Segir gríðarleg tregðulögmál að verki á þinginu Píratar duttu út af þingi í þeim kosningum sem nú eru nýafstaðnar. Björn Leví Gunnarsson Pírati gerir upp þingsetu sína í pistli sem hann skrifar á Facebook-síðu sína. Innlent 2.12.2024 10:57
Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, fundaði á mánudag með formönnum allra flokka sem náðu inn á þing. Formaður Viðreisnar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir lagði til að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, fengi umboð til stjórnarmyndunar. Inga Sæland sagðist treysta Kristrúnu fyrir umboðinu og Sigmundur Davíð að eðlilegt væri að Kristrún fengi fyrst að spreyta sig. Innlent 2.12.2024 08:02
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið 1.12.2024 15:46
31 snýr ekki aftur á þing Af 63 þingmönnum síðasta kjörtímabils hverfa 30 á braut þegar nýtt þing tekur til starfa. Innlent 1. desember 2024 15:07
Halla forseti hittir alla formennina á morgun Halla Tómasdóttir forseti Íslands segist ætla að hitta alla formenn flokkanna á morgun, það er þeirra sem náðu inn á þing, með það fyrir augum að taka afstöðu til stjórnarmyndunarumboðs. Innlent 1. desember 2024 14:56
„Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna þakkar stuðningsfólki og samstarfsfólki sínu fyrir samvinnuna í færslu á Facebook fyrr í dag. Samkvæmt niðurstöðum úr Alþingiskosningum þurrkast flokkurinn alveg út af þingi og missir rétt sinn til árlegra fjárframlaga til stjórnmálasamtaka úr ríkissjóði. Innlent 1. desember 2024 14:49
Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Aldursforsetinn á næsta þingi, sú sem kom inn síðust sem jöfnunarþingmaður í Suðvestur, er Jónína Björk Óskarsdóttir fyrir Flokk fólksins. Hún segist ekki hafa séð þetta fyrir. Innlent 1. desember 2024 13:42
Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Fjórir stjórnarandstöðuflokkar bættu samtals við sig 24 þingsætum í alþingiskosningunum í gær á meðan ríkisstjórnarflokkar síðasta kjörtímabils guldu sameiginleg afhroð. Vinstri græn þurrkuðust út af þingi en Sjálfstæðisflokkur vann varnarsigur. Innlent 1. desember 2024 13:28
Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum Formaður Sjálfstæðisflokksins segist klóra sér í hausnum yfir velgengni Flokks fólksins sem fjármálaráðherra til langs tíma. Margt sem flokkurinn hafi talað fyrir myndi kosta ríkissjóð verulega. Bjarni segir æskilegt að hægt yrði að sjá nánara niðurbrot atkvæða í kjördæmunum. Innlent 1. desember 2024 11:52
„Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er hvergi nærri af baki og lýsir því yfir að það séu ýmis stjórnarmynstur inni í myndinni. Hann lítur ekki á niðurstöður kosninganna sem einhvern sigur vinstrisins. Innlent 1. desember 2024 11:51
Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Norðvesturkjördæmi en Flokkur fólksins flesta þingmenn. Sex flokkar fengu yfir tíu prósent atkvæða í kjördæminu og hvern sinn kjördæmakjörna þingmanninn. Innlent 1. desember 2024 11:42
Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða Ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu samtals tæplega fjórðungi þeirra atkvæða sem þeir fengu í síðustu kosningum í Norðausturkjördæmi. Vinstri græn þurrkuðust út í kjördæmi sem var helsta vígi flokksins utan Reykjavíkur. Innlent 1. desember 2024 11:36
„Þannig fór um sjóferð þá“ „Þannig fór um sjóferð þá,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, um úrslit næturinn en ljóst þykir að Píratar eru dottnir út af þingi. Innlent 1. desember 2024 11:31
Framsókn: Það verður alltaf sviðasulta í kæliborðinu Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er einn þeirra sem býður upp á greiningu á stöðu mála nú að loknum kosningum. Hann segir Kristrúnu Frost Taylor Swift kosninganna. Innlent 1. desember 2024 11:11
Boltinn kominn til þeirra sem unnu kosningarnar „Ákallið um breytingar er mikið og boltinn er þá kominn til þeirra sem unnu kosningarnar,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, þegar fréttastofa náði tali af honum fyrir stundu. Innlent 1. desember 2024 11:10
„Mjög skýrt ákall um breytingar“ segir Kristrún um stjórnarmyndun „Ég held að það liggi alveg fyrir að það er mjög skýrt ákall um breytingar, niðurstöðurnar sýna það svart á hvítu,“ sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við fréttstofu rétt í þessu. Innlent 1. desember 2024 10:42
„Þjóðin er að refsa stjórnarflokkunum grimmilega“ Inga Sæland formaður Flokks fólksins sagði nú rétt í þessu, í viðtali við Kristján Kristjánsson á Sprengisandi, að kosingarnar væru sögulegar – þær eigi eflaust eftir að fara á spjöld sögunnar. Innlent 1. desember 2024 10:36
Nú reynir á konurnar þrjár Menn halda áfram að rýna í niðurstöður kosninganna og ljóst þykir að um sögulegar kosningar hafi verið að ræða. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor er ein þeirra sem telur kosningaúrslit næturinnar sýna með óvíræðum hætti ákall um breytingar á stjórn landsins og nú reyni á konurnar þrjár sem sigruðu kosningarnar. Innlent 1. desember 2024 10:13
„Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Egill Helgason sjónvarpsmaður rýndi í spilin í nótt og að hans sögn er afhroð vinstrisins rosalegt. Menn reyna nú að sjá fyrir hvaða ríkisstjórnarmynstur er inni í myndinni nú að loknum sannkölluðum jarðskjálftakosningum, líkt og Þorsteinn Pálsson Viðreisnarmaður og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í myndveri kosningasjónvarps Stöðvar 2. Innlent 1. desember 2024 09:05
Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins Söguleg tíðindi urðu í Suðurkjördæmi þar sem Flokkur fólksins stóð uppi sem stærsti flokkurinn þegar lokatölur voru birtar klukkan hálf átta í morgun. Formaður Framsóknarflokksins náði inn sem kjördæmakjörinn þingmaður. Innlent 1. desember 2024 08:25
Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Loktölur hafa borist úr Reykjavíkurkjördæmi norður. Samfylkingin vann stórsigur í kjördæminu og er með 26,1 prósent. Í síðustu kosningum var flokkurinn með 12,6 prósent. Innlent 1. desember 2024 06:09
Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Lokatölur hafa borist úr Reykjavíkurkjördæmi suður. Samfylkingin er stærsti flokkurinn með 22,9 prósent fylgi og þrjá menn inni. Í síðustu kosningum var flokkurinn með 13,3 prósent og einn mann á þingi. Innlent 1. desember 2024 05:08
Kanónurnar sem eru að hverfa Miklar sveiflur eru á fylgi þingflokka sem hefur þau áhrif að þekktir þingmenn ýmissa flokka hverfa af þingi. Vísir tók saman stærstu nöfnin sem þurfa að öllum líkindum að hverfa á braut. Innlent 1. desember 2024 03:07
Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar segist engar áhyggjur hafa af sinni eigin framtíð né heldur af framtíð flokksins. Hann segir það ekki hafa verið mistök að hafa gefið eftir sæti sitt sem oddvita. Útlit er fyrir að hann muni ekki ná sæti á þingi ef miðað er við talningar í kosningunum þegar þetta er skrifað. Innlent 1. desember 2024 02:39