Fótbolti

Missti tönn en fann hana á vellinum

Sindri Sverrisson skrifar
Dani Olmo missti tönn eftir þessa glímu við Marc Bartra um helgina.
Dani Olmo missti tönn eftir þessa glímu við Marc Bartra um helgina. Getty/Eric Verhoeven

Evrópumeistarinn Dani Olmo missti tönn í baráttu við Marc Bartra, í leik Barcelona og Real Betis í spænsku 1. deildinni í fótbolta um helgina.

Olmo og Bartra áttust við á 30. mínútu leiksins, sem var á heimavelli Betis, sem endaði með því að Bartra togaði Olmo niður.

Olmo varð þá fyrir því óláni að fá hæl Bartra framan í andlitið og við það missti hann tönn, eða tannkrónu, í grasið. Hann var hins vegar fljótur að átta sig og fann hana strax í grasinu.

Liðsfélagar Olmo virtust hafa gaman að þessu óvenjulega atviki og í hálfleik mátti sjá hina ungu liðsfélaga hans, Lamine Yamal og Pedri, spjalla saman um þetta:

„Það blæddi ekkert og hann tók tönnina út,“ sagði Yamal. „Kom ekkert blóð?“ spurði Pedri. „Það kom ekkert blóð út en af hverju hentuð þið henni?“ spurði Yamal. „Hann var með hana í hendinni og ég sagði: Geymdu hana, áttu einhvern fá hana,“ svaraði Pedri.

Einn sigur í síðustu fimm

Olmo missti ekki bara tönn heldur missti Barcelona af tveimur stigum því Betis náði að tryggja sér 2-2 jafntefli með marki varamannsins Assane Diao undir lokin.

Robert Lewandowski hafði komið Barcelona yfir en Giovani Lo Celso jafnaði fyrir Betis af vítapunktinum. Ferran Torres kom Barcelona yfir að nýju þegar um tíu mínútur voru eftir en það dugði ekki til.

Barcelona er enn efst í deildinni með 38 stig, tveimur stigum á undan Real Madrid, eftir aðeins einn sigur í síðustu fimm deildarleikjum. Real á leik til góða.

Næsti leikur Börsunga er hins vegar í Meistaradeild Evrópu, gegn Dortmund annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×