Handbolti

Öruggt hjá FH og Fram en endur­koma hjá ÍR á Nesinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Feðgarnir Baldur Fritz Bjarnason og Bjarni Fritzson. Bjarni er þjálfari ÍR en Baldur markahæsti leikmaður liðsins í vetur. Hann skoraði átta mörk gegn Gróttu.
Feðgarnir Baldur Fritz Bjarnason og Bjarni Fritzson. Bjarni er þjálfari ÍR en Baldur markahæsti leikmaður liðsins í vetur. Hann skoraði átta mörk gegn Gróttu. vísir/bjarni

Grótta og ÍR gerðu jafntefli, 29-29, í hörkuleik í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. FH og Fram unnu hins vegar örugga sigra á HK og Fjölni.

Baldur Fritz Bjarnason skoraði átta mörk fyrir ÍR-inga sem hafa náð í þrjú stig í síðustu tveimur leikjum sínum. Þeir eru í ellefta og næstsíðasta sæti deildarinnar með átta stig. 

Róbert Snær Örvarsson skoraði sex mörk fyrir ÍR, þar á meðal jöfnunarmarkið rúmri mínútu fyrir leikslok. Hann gat tryggt ÍR-ingum sigurinn en lokaskot hans geigaði. Gamla brýnið Arnór Freyr Stefánsson átti góða innkomu í mark Breiðhyltinga og varði átta af þeim fjórtán skotum sem hann fékk á sig (57 prósent).

Seltirningar eru í 8. sæti deildarinnar með tíu stig en þeir hafa ekki unnið leik síðan 3. október. Grótta var tveimur mörkum yfir þegar tvær mínútur voru eftir en kastaði sigrinum frá sér. Sæþór Atlason var markahæstur í liði Gróttumanna með sjö mörk. Jón Ómar Gíslason skoraði fimm mörk.

Birkir lokaði markinu

FH vann sinn fimmta leik í röð þegar liðið lagði HK örugglega að velli, 30-21. HK-ingar unnu fyrri leikinn gegn FH-ingum en sáu ekki til sólar í kvöld. FH er á toppi deildarinnar með 21 stig en HK er í 10. sætinu með átta stig.

Símon Michael Guðjónsson skoraði átta mörk fyrir FH og Jóhannes Berg Andrason sex. Birkir Fannar Bragason átti frábæra innkomu í markið hjá FH-ingum og varði fjórtán skot (53,8 prósent).

Hjörtur Ingi Halldórsson og Kári Tómas Hauksson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir HK sem tapaði boltanum fimmtán sinnum í leiknum og var aðeins með fimmtíu prósent skotnýtingu.

Reynir kom að fimmtán mörkum

Fram komst aftur á sigurbraut eftir tapið fyrir FH og vann botnlið Fjölnis, 28-36. Framarar eru í 3. sæti deildarinnar með sextán stig en Fjölnismenn eru áfram með sín sex stig.

Reynir Þór Stefánsson og Theodór Sigurðsson skoruðu báðir sjö mörk fyrir Fram. Sá fyrrnefndi gaf einnig átta stoðsendingar. Arnór Máni Daðason og Breki Hrefn Árnason vörðu samtals sautján skot í marki Framara (37,8 prósent).

Óðinn Freyr Heiðmarsson og Björgvin Páll Rúnarsson skoruðu sex mörk hvor fyrir Fjölni sem hefur tapað fimm leikjum í röð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×