Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Sindri Sverrisson skrifar 29. nóvember 2024 21:33 Þýskaland fór illa með úkraínska liðið á EM í dag. Getty/Marco Wolf Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Úkraínu í næsta leik sínum á Evrópumótinu, eftir frábæra frammistöðu gegn Hollendingum í Innsbruck í kvöld.
Þrátt fyrir hetjulega frammistöðu varð Ísland að sætta sig við 27-25 tap í kvöld gegn Hollandi, sem varð í 5. sæti á Ólympíuleikunum í sumar. Úkraína mátti hins vegar þola mun stærra tap í leik sínum gegn Þýskalandi, eða 30-17, í seinni leik kvöldsins í F-riðli. Þýskaland var 15-9 yfir í hálfleik og þá þegar var því ljóst í hvað stefndi, og tókst úkraínska liðinu aðeins að skora átta mörk í seinni hálfleiknum. Alina Grijseels var markahæst hjá Þýskalandi með sex mörk og Lisa Antl skoraði fimm. Hjá Úkraínu var Liliia Horilska markahæst með fjögur mörk en þær Tamara Smbatian, Iryna Kompaniiets og Valeriia Nesterenko skoruðu þrjú mörk hver. Á sunnudaginn mætast Ísland og Úkraína annars vegar, en Þýskaland og Holland hins vegar. Ísland mætir svo Þýskalandi á þriðjudag í lokaumferð riðilsins. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðla en tvö neðstu liðin falla úr keppni. Í öðrum riðlum vann Danmörk öruggan sigur gegn Króatíu, 34-26, og Svartfjallaland vann 24-18 í slag við granna sína frá Serbíu.
EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Enski boltinn Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Ákvað að yfirgefa KR Körfubolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Markvörður City: „Liverpool ekki besti hluti Bretlands“ Enski boltinn Telja sprungur komnar í samband stjórans við stjörnuna Enski boltinn Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“ Formúla 1 Fleiri fréttir Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ „Þá rennur stressið af manni“ Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum „Gæsahúð allsstaðar“ Hugsaði lítið og stressaði sig minna Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Fullt af möguleikum í þessu Stelpur sem geta lúðrað á markið „Ég fór ekkert alltof seint að sofa“ „Ég þarf smá útrás“ Íslendingaliðin með örugga sigra í Portúgal Janus og félagar á toppnum eftir sjöunda sigurinn í röð Norsku stelpurnar hans Þóris með fullt hús Öruggur sigur ÍBV gegn Val „Ætla að gefa þessum kosningum frí“ Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik