Skoðun

Vel­ferð fanga kemur okkur öllum við

Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar

Rauði krossinn á Íslandi hefur rekið verkefnið Aðstoð eftir afplánun síðan 2018, að norskri og danskri fyrirmynd. Verkefnið er afar mikilvægt framtak þar sem hættan á endurkomu í fangelsi er hæst fyrsta árið eftir lausn og því er nauðsynlegt að styðja við einstaklinga sem vilja ekki falla í sama farið. Sams konar verkefni er að finna hjá fleiri landsfélögum Rauða krossins og þau hafa skilað góðum árangri í að efla einstaklinga, bæði í afplánun og eftir hana, og þar af leiðandi fækka endurkomum í fangelsin.

Einstaklingsmiðaður og lífsnauðsynlegur stuðningur

Aðlögun að samfélaginu eftir lausn er oft erfið en stuðningur eftir afplánun er almennt afar takmarkaður á Íslandi. Það getur reynst einstaklingum lífsnauðsynlegt að fá viðunandi aðstoð, þar á meðal til þess að endurheimta sjálfsbjargarhæfni sína, finna atvinnu, húsnæði og einangrast ekki félagslega. Án aðstoðar eiga margir einstaklingar erfitt með að falla ekki aftur í sama farið.

Sálfélagslegur stuðningur er einn af mikilvægustu þáttum verkefnisins, en þar er veittur stuðningur sem nýtist þátttakendum og reynt er að finna úrræði og virkja einstaklinga til að nýta sér aðstoðina. Þar sem þarfir þátttakenda eru mjög mismunandi aðlagar verkefnið sig að væntingum og þörfum hvers og eins.

Að geta rætt við hlutlausan aðila sem sýnir raunverulegan áhuga er afar mikilvægt. Markmið okkar er að bæta félagslega stöðu og draga úr félagslegri einangrun og fordómum sem fyrrverandi fangar kunna að mæta. Verkefnið er drifið áfram af sjálfboðaliðum sem styðjast við samþætta og heildræna nálgun.

Mikilvægt að skilja tengsl áfalla og afbrota

Flestir, ef ekki allir einstaklingar sem fremja afbrot hafa upplifað áföll. Áföll geta haft mikil áhrif á hegðun okkar og hvernig við tökum ákvarðanir. Áföll á æskuárum eins og misnotkun, vanræksla og ofbeldi geta byggt upp tilfinningar eins og reiði, hjálparleysi og ófullnægjandi hæfni til að takast á við lífið.

Ef þeim úrræðum sem eiga að grípa einstaklinga sem hafa orðið fyrir alvarlegu áfalli er ábótavant getur það orðið til þess að einstaklingar reyni að finna aðrar leiðir til þess að komast í gegnum tilfinningalega erfiðleika eða ná aftur stjórn á eigin lífi. Stundum hafa þessar aðferðir neikvæðar afleiðingar bæði fyrir einstaklingana og samfélagið. Að skilja tengingu áfalla og afbrota er því lykilatriði í að fyrirbyggja afbrot og stuðla að endurhæfingu.

Þörf á samþættri þjónusta

Það eru mörg félög og stofnanir sem koma að fangelsismálum sem vilja vel og leggja sig fram um að veita góða þjónustu, en samt sem áður ríkir ákveðið úrræðaleysi í kerfinu. Það virðist vera þörf fyrir betra samstarf milli þeirra sem vinna að þessum málaflokki. Mikilvægt er að einstaklingar sem koma úr afplánun fái samþætta og einstaklingsmiðað þjónustu þar sem þeir fá tækifæri til uppbyggingar og jákvæðra breytinga.

Stuðningur og endurhæfing fyrrum afbrotamanna kemur okkur öllum við. Með viðeigandi þjónustu og úrræðum erum við ekki einungis að styðja við einstaklinga sem kerfið mistókst að grípa á einhverjum tímapunkti, heldur einnig að styrkja félagslegt réttlæti, brjóta vítahring glæpa, minnka fangelsiskostnað og auka öryggi samfélagsins.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í verkefninu Aðstoð eftir afplánun.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×