Skoðun

For­gangs­orkan verður ekki skert

Tinna Traustadóttir skrifar

Landsvirkjun hefur aldrei skert forgangsorku þau tæpu 60 ár sem orkufyrirtæki þjóðarinnar hefur starfað. Ekkert bendir heldur til að við skerðum afhendingu forgangsorku á komandi vetri. Við höfum ávallt gætt þess að lofa ekki meiri forgangsorku en við ráðum við að selja, jafnvel þegar vatnsár eru með erfiðasta móti. Það hefur hins vegar komið til skerðinga á afhendingu raforku á undanförnum árum en í þeim tilvikum hafa samningar við kaupendur kveðið á um að skerða mætti orkuna, þeir hafa keypt skerðanlega orku og greitt fyrir hana lægra verð en fyrir forgangsorku.

Forgangsorka er einfaldlega sú orka sem raforkuframleiðendur skuldbinda sig til þess að afhenda viðskiptavinum, óháð vatnsbúskap, viðhaldi eða öðrum fyrirsjáanlegum þáttum í rekstrinum.

Óhætt er að taka undir með þeim sem segja að þörf sé á meiri orkuvinnslu á Íslandi. Við hjá Landsvirkjun höfum ítrekað bent á þessa staðreynd og nú stefnir í að við getum loks hafist handa við Hvammsvirkjun og vindorkuverið Búrfellslund. Þegar ekki er næg orka verður stundum að skerða hana til þeirra sem hafa samið á þann veg. Og á sama tíma er ekki heldur hægt að tryggja sumum fyrirtækjum orku, sem gjarnan hefðu viljað kaupa meira en þau fá núna. Það er hins vegar ábyrgðarlaust að tala eins og stefni í skerðingar á forgangsorku.

Er þá alveg útilokað að komi til skerðingar á forgangsorku? Nei, það er ekki hægt að fullyrða það, því meiriháttar náttúruhamfarir gætu auðvitað leitt til þess að Landsvirkjun gæti ekki unnið orkuna. En það þarf slík óviðráðanleg, ytri atvik (force majeure) til að skerðingar á forgangsorku raungerist.

Stöndum við allar skuldbindingar

Landsvirkjun hefur ávallt staðið við allar skuldbindingar sínar um afhendingu á forgangsorku. Í slæmum vatnsárum tryggjum við afhendingu hennar með því að draga úr afhendingu á skerðanlegri orku. Það þarf ekki að koma á óvart, kerfið okkar er byggt upp með þessum hætti og allir sem kaupa raforku af Landsvirkjun eru meðvitaðir um það. Hér tala ég að sjálfsögðu aðeins fyrir hönd Landsvirkjunar en ég ætla að gefa mér að eins sé farið um önnur orkuvinnslufyrirtæki. Það er ekki samið um afhendingu forgangsorku ef minnsti vafi leikur á því hvort hægt sé að standa við gerðan samning.

Loks er rétt að benda á, að Landsvirkjun hefur lagt sitt af mörkum til að tryggja raforkuöryggi heimila. Við höfum t.d. forgangsraðað raforkusölu inn á almenna markaðinn umfram aðra raforkusölu, með því að tryggja 45% meira magn inn á þann markað frá 2021. Það eru auðvitað takmörk á því hversu mikið til viðbótar Landsvirkjun getur selt til almenna markaðarins. Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á orkuöryggi almenna markaðarins, það gera stjórnvöld, en vissulega höfum við forgangsraðað.

Við höfum líka dregið úr sölu til gagnavera um 50% milli ára og langt er síðan við lýstum því yfir að rafmyntagröftur sætti algjörum afgangi hjá okkur og fengi ekki forgangsorkusamninga. Þá má benda á að nýlega gerðum við tímamótasamning um afhendingu forgangsorku til fjarvarmaveitna á Vestfjörðum, sem dregur verulega úr bruna þeirra á jarðefnaeldsneyti.

Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×