Erlent

Ís­lendingur hand­tekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikið sem málið varðar átti sér stað í borginni Mazatlán í Mexíkó.
Atvikið sem málið varðar átti sér stað í borginni Mazatlán í Mexíkó. Getty

Karlmaður sem er sagður af íslenskum uppruna var handtekinn í borginni Mazatlán í Mexíkó fyrir helgi, en hann er grunaður um valda skemmdarverkum.

Greint er frá þessu í mexíkóskum fjölmiðlum síðastliðinn föstudag.

Maðurinn er sagður hafa verið handtekinn í húsnæði sem áður var sjúkrahús á vegum mexíkóska hersins eftir kvartanir starfsfólks.



Hann var sakaður um skemmdarverk en á honum fundust málningardósir eða spreybrúsar. Fjölmiðlar vestanhafs telja að um veggjakrot inni á sjúkrahúsinu hafi verið að ræða.

Eftir handtökuna var maðurinn færður fyrir dómara sem mun ákvarða um sekt mannsins sem og mögulega refsingu.

Uppfært: Í færslu lögreglunnar Mazatlán eru myndir birtar af vettvangi. Á þeim má bæði sjá spreybrúsa sem og veggjakrot. Svo virðist sem Íslendingurinn sé grunaður um að teikna svokallaðar minions-fígúrur sem hafa gert garðinn frægan í kvikmyndaseríunni Aulinn ég.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×