Skoðun

Þegar rusl verður dýr­mæt auð­lind

Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Nýtt og samræmt flokkunarkerfi innan sorphirðu var innleitt á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2023 og var um risastóra breytingu að ræða. Sérsöfnun lífræns úrgangs og söfnun á plasti og pappír við hvert heimili hefur haft áhrif á hegðun okkar inni á heimilunum og hefur haft gríðarlega jákvæð umhverfisáhrif.

Gas- og jarðgerðarstöðin GAJA sem komið var á fót í góðu samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu tók til starfa á árinu 2020 og skapaði grundvöll fyrir þessari mikilvægu breytingu.

Með flokkun og hirðu á matarleifum og vinnslu þeirra í GAJU er dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda og svo styður þetta við nýtingu þeirra næringarefna sem felast í matarleifunum okkar. Þetta er hringrásarhagkerfið að störfum.

Gert er ráð fyrir að um 24.000 tonn af matarleifum fari gegnum GAJU árið 2024. Þetta mun draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem nemur 19.200 tonnum af koldíoxíði en það samsvarar losun um 10.000 fólksbíla. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, 2024, var urðunin 89% minni en fyrsta ársfjórðung 2023.

Þegar kemur að flokkun og hirðu við heimili í Reykjavík í samanburði fyrstu fjögurra mánaða á árunum 2022 og 2024 er 187% aukning á flokkun á plasti, 32% aukning á flokkun á pappír og 4761% aukning á flokkun matarleifa. Blandaður úrgangur hefur þá dregist saman um 37%. Áður var plasti safnað við 40% heimila og pappír við 70% heimila svo þessi mikla aukning á söfnun plasts er þannig ekki bara tilkomið vegna breyttrar sorphirðu heldur er fólk einfaldlega duglegra að flokka plast í dag og ber að þakka fyrir það.

Við erum komin allan hringinn. Á sumardaginn fyrsta var fyrstu uppskerunni af næringarríkri moltu í GAJU fagnað þar sem boðið var upp á ókeypis moltu og í opið hús. Sveitarfélögin og Sorpa þökkuðu með þessu fyrir góðan árangur við flokkun á matarleifum og buðu íbúum moltu endurgjaldslaust á völdum stöðum í maí og júní. Molta verður áfram í boði endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum.

Sorphirðan í Reykjavík siglir nú nokkuð lygnan sjó og tafir hafa ekki orðið í hálft ár. Tafir urðu síðast á hirðu um áramótin vegna verulegra bilana á hirðubílum og erfiðrar færðar í kjölfar mikillar neyslu um hátíðirnar. Við erum búin að bæta tækjakost síðan og erum farin að slípast til í nýju kerfi.

Það er áskorun að gera stórar breytingar. Það getur meira að segja verið bras og vesen eins og við þekkjum af reynslunni af byggingu GAJU og svo breytingu á sorphirðunni. En gleymum ekki stóru myndinni og hvert við þurfum að stefna og hvert við erum að stefna í þágu umhverfisins.

Höfundur er formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og borgarfulltrúi Pírata.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×