Skoðun

Verður hug­vitið stærsta út­flutnings­varan okkar og jafn­framt sú verð­mætasta?

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar

Mögulega.

Grunn atvinnugreinar einsog ferðaþjónusta, sjávarútvegur, landbúnaður og orkufrekur iðnaður krefst stöðugra umbóta, aukinnar framleiðni, skorti á starfsfólki, neikvæðum umhverfisáhrifum, aukinnar sjálfbærni og annarra utanaðkomandi áskoranna. Til að leysa þessar áskoranir þarf m.a hugvits drifnar tæknilausnir sem leysa ekki einungis íslensk vandamál heldur eru lausnir sem hægt er að skala og selja á heimsvísu. Íslenskur markaður er þó lykilatriði á tilraunar stigi og til að kanna fýsileika á vörum og þjónustu. Ef það virkar til að leysa okkar vandamál, þá er heimsmarkaðurinn mun nær og aðgengilegri fyrir vikið. Okkar fremstu tæknifyrirtæki hafa þannig orðið til vegna grunn atvinnuvega sem stunda nýsköpun og hafa færi á að fjárfesta og taka þátt í mikilvægri þróun og innleiðingu á nýrri tækni. Ný tækni er ekki tekin úr einhverju tómi eða afþvi að einhver fær frábæra hugmynd að lausn. Hún er byggð á áskorunum og vandamálum sem þarf að leysa og með því leysa úr læðingi nýja krafta, tækifæri og aukna verðmætasköpun fyrir hagkerfið í heild. Eitt er ekki til án annars, þetta er samhengi og virðiskeðja sem hefur marga mismunandi en mikilvæga hlekki.

Hvernig auðveldum við fólki til að taka ákvarðanir, drögum úr sóun, gerum störf meira spennandi og skapandi, aukum öryggi? hvernig breytum við kerfisbundnum ferlum sem eru ekki endilega að þjóna tilgangi sínum lengur?

Horfum á hugvit og tækni í samhengi við ferðaþjónustu.

Íslensk ferðatæknifyrirtæki taka í fyrsta skipti þátt í ITB - Berlín sem er með stærstu og umfangsmestu ferðasýningum í heimi.

Það er algjörlega einstakt að ferðatækni (Travel Tech) sé komið á þennan stað og sýnir svo sannarlega hvernig við höfum fangað hugvitið og fjölgað útflutningsstoðum Íslands enn frekar. Eitt helsta markmið Ferðaklasans er að auka samkeppnishæfni og efla verðmætasköpun í ferðaþjónustu og er fjárfesting fyrirtækja í nýrri tækni eitt af lykilatriðum til að uppfylla þau markmið.

Íslenski ferðaklasinn hefur stutt við ferðatækni og þróun þessara fyrirtækja síðustu 7 árin með því að veita þeim vettvang, standa fyrir viðburðum, byggja brýr og tengja. Mikilvægasta brúin er á milli ferðaþjónustufyrirtækja og tæknifyrirtækjanna ásamt stuðningi við innleiðingu.

Nýjasta brúin er yfir á svið hugvits og tækni hjá Íslandsstofu sem ber ábyrgð á erlendri markaðssetningu og stuðningi í sókn tæknidrifinna fyrirtækja á erlendri grundu. Hlutverk Íslandsstofu er m.a að standa að sýningum um víða veröld og koma útflutningsfyrirtækjum á framfæri.

Við erum því mætt til Berlínar þessa vikuna til þess að halda áfram brúarsmíðinni með ferðatækni-fyrirtækjunum en einnig til að styðja við þau fjölmörgu íslensku ferðaþjónustu fyrirtæki sem bera hróður Íslands út um víða veröld og freista ferðaheildsala til að halda Íslandsferðum áfram af fullum krafti 🗺️

Í sendinefnd íslensku tæknifyrirtækjanna má finna Paxflow, Keeps, GoDo, Reserva, Kaptio, TourDesk og Sweeply.

Höfundur er framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×