Skoðun

Dala­Auður - sóknar­færi fyrir sam­fé­lagið

Jóhanna María Sigmundsdóttir og Linda Guðmundsdóttir skrifa

Nú er nýafstaðinn íbúafundur vegna verkefnisins DalaAuðs, verkefni brothættra byggða í Dalabyggð.

Fundurinn var vel heppnaður og voru ýmis mál rædd, meðal annars mikilvægi þess að haldið verði áfram uppbyggingu innviða enda samgöngumálin eitt brýnasta verkefnið í Dalabyggð. Íbúar viðruðu einnig hugmyndir um nýja möguleika varðandi dagvöruverslun á svæðinu. Þá voru lagðar fram tillögur um félags- og menningarstarf ásamt því að málefni eldri borgara og skólamálin voru rædd.

Íbúafundir sem þessir eru verkefninu gífurlega mikilvægir því þar fá íbúar tækifæri til að koma sínum áherslum og hugmyndum á framfæri. Það sem gleður einnig er að sjá þann samhljóm sem er með óskum íbúa og áætlunum sveitarfélagsins. Það skiptir miklu máli, því þannig verður útkoman öflugri.

Sveitarfélagið Dalabyggð er nefnilega í sókn. Sem dæmi má nefna að áform um byggingu á íþróttahúsi og sundlaug í Búðardal ásamt því að unnið er að deiliskipulagi lóða til frekari húsnæðisuppbyggingar. Þá hefur verið stofnaður vinnuhópur um uppbyggingu iðngarða í Búðardal.

Íbúarnir eru líka í sókn, það sést einna helst í gróskunni í samfélaginu. Nýr kór hefur tekið til starfa, leikfélagið hefur risið úr dvala og um þessar mundir eru haldin námskeið eða viðburðir vikulega. Íbúar hafa sýnt einstaka jákvæðni gagnvart verkefninu og fjölmargir sótt um styrki í Frumkvæðissjóð DalaAuðs en samtals hefur verið úthlutað 24,5 milljónum til ýmissa frumkvæðisverkefna í Dalabyggð.

Þegar þetta fléttast svo allt saman, verkefnin og áhugi íbúanna og gott samstarf allra sem koma að DalaAuði, þá verður til eitthvað magnað. Við sjáum sprota og ný störf að mótast, nýjar vörur í þróun, mannlífið dafnar og hæfileikar fá að blómstra. Það er engu líkara en að DalaAuður hafi vökvað og borið á akra sem að upplagi voru mjög frjósamir, því styrkleikar Dalanna eru svo sannarlega að birtast okkur í gegnum verkefnið.

Í amstri dagsins getum við gleymt að horfa yfir sviðið og sjá hvert við erum komin. Stundum þarf ekki nema dagspart á íbúafundi til að minna á hve mikið hefur náð fram að ganga og hversu mikið við getum gert með samhentu átaki. Það er gífurlega gefandi að horfa yfir sal þar sem fólk á í jákvæðum samræðum á hverju borði, samræðum sem miða allar að því að efla, byggja upp og ná árangri fyrir samfélagið sem við viljum búa í.

Ugglaust hljómum við ögn háfleygar en í grunninn, vildum við einfaldlega setjast niður og koma í orð þakklæti til íbúa Dalabyggðar. Takk fyrir að leyfa fleirum að njóta hugmynda ykkar og hæfileika. Takk fyrir að vilja samfélaginu vel og sýna það með þátttöku ykkar í DalaAuði.

Jóhanna María Sigmundsdóttir, verkefnisstjóri hjá Dalabyggð.

Linda Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri DalaAuðs.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×