Skoðun

Matvælaverð lækkar!

Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar - Enn og aftur lækkar núverandi þingmeirihluti skatta og gjöld. Þann 1. mars lækkaði virðisaukaskattur á öll matvæli í 7%. Lækkun þessi nær einnig til veitingahúsa, mötuneyta og hliðstæðra aðila.

Allur þorri matvæla bar áður 14% skatt og nokkar vörur 24,5%. En lækkunin tekur til fleiri þátta, virðisaukaskattur á annarri vöru og þjónustu sem var í 14% þrepi lækkar í 7%. Þar er m.a. um að ræða hótel og gistihús, afnotagjald útvarps- og sjónvarpsstöðva, tímarit, dagblöð, bækur, heitt vatn, rafmagn, geisladiska og aðgang að vegamannvirkjum.

Það er sérstaklega ánægjulegt að það virðist vera nokkuð breið samstaða um málið á Alþingi en fram til þessa hefur stjórnarandstaðan barist mjög hart gegn öllum skattalækkunum, hvort sem er tekjuskattslækkunum eða eignarskattslækkunum. Barátta þeirra gegn eignaskattslækkunum var sérstaklega athyglisverð þar sem lækkun þess skatts var mikil kjarabót fyrir eldri borgara en um 16 þúsund einstaklingar 66 ára og eldri greiddu þann skatt. Afnám hans var því kjarabót sem nam tugum þúsunda á hverju ári að meðaltali fyrir þann hóp.

Einn af fyrirrennurum Samfylkingarinnar, Alþýðuflokkurinn sálugi, barðist alla tíð mjög hart gegn lækkun matarskatts. Þegar Þorsteinn Pálsson, þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði til lækkun matarskatts í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Fram-sóknarflokks árið 1988 sprengdi þáverandi formaður Alþýðuflokksins ríkisstjórnina með þeim orðum að slík tillaga væri rýtingsstunga!

Lækkun skatta og gjalda á matvælum er samt sem áður einungis skref í þá átt að lækka enn frekar innflutningsgjöld og opna enn frekar okkar markaði fyrir verslun með landbúnaðarvörur. Á sama hátt eigum við að afnema gjöld á afurðum til landbúnaðarframleiðslu. Það þarf hinsvegar fleira til en lækkun gjalda til að ná niður matarverði. T.d kostar baguette-brauð í Parísarborg 80 krónur en í Reykjavík 290 krónur. Ég veit reyndar ekki hvaða gjöld er hægt að lækka til að ná Parísarverðinu enda eru engin innflutningsgjöld á hveiti hér á landi.

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×